Fjögurra daga heimför Artemis að hefjast
World

Fjögurra daga heimför Artemis að hefjast

April 7, 2026
RÚV
Scroll

Áhöfn Artemis II er á leið til jarðar að nýju eftir að hafa virt fyrir sér fjarhlið tunglsins. Stjórnstöð NASA í Houston náði sambandi við áhöfnina um miðnæturbil að íslenskum tíma eftir að það rofnaði í um það bil fjörutíu mínútur eins og við var búist meðan Orion-farið var handan tunglsins. Þá hafði áhöfnin farið lengra út í geim en nokkur mannvera önnur, eða tæplega 407 þúsund kílómetra.

Fjögurra daga heimför Artemis að hefjast

Það fyrsta sem tunglfarinn Christina Koch sagði var hve dásamlegt væri að heyra frá jörðinni á ný.Tunglfararnir fjórir lýstu í hörgul því sem fyrir augu þeirra bar á fjarhlið tunglsins, sem aldrei er sýnileg frá jörðu og hefur aðeins verið ljósmynduð af ómönnuðum förum. Það lítur í raun út eins og lampaskermur með litlum nálargötum og ljósið skín í gegn,“ sagði Koch. Þeir eru svo bjartir miðað við restina af tunglinu.“ Einnig sáu þau sólmyrkva meðan Orion-farið var í fullkomlega beinni línu við tunglið og sólina sem þá hverfur sjónum. Flugi Orion fram hjá tunglinu lauk um það bil klukkan tuttugu mínútur yfir eitt og þá hélt farið í fjögurra daga ferð í átt til jarðar að nýju. Áhöfnin bað í gær um að fá að nefna tvo gíga tunglsins, skömmu eftir að fjarlægðarmetið var slegið. Þau fóru fram á að annar yrði nefndur Integrity eða Heilindi eftir gælunafni þeirra yfir Orion-farið og hinn Carroll í höfuðið á eiginkonu leiðangursstjórans Reids Wiseman, sem lést af völdum krabbameins. Eftir stutta þögn staðfesti stjórnstöð NASA heitin og tilkynnti að þau yrðu borin undir Alþjóðasamtök stjarnfræðinga, IAU, sem hefur það hlutverk að nefna margvísleg fyrirbæri í geimnum. Þess má geta að gígar á Merkúr eru nefndir eftir rithöfundinum Halldóri Laxness, listakonunum Júlíönu Sveinsdóttur og Nínu Tryggvadóttur og sagnaritaranum Snorra Sturlusyni. Þetta er í fyrsta skipti sem kona, Christina Koch, fer að tunglinu og Victor Glover er fyrsti svarti maðurinn sem vinnur það afrek. Jafnframt er Kanadamaðurinn Jeremy Hansen fyrsti tunglfarinn fæddur utan Bandaríkjanna. Leiðangursstjórinn Reid Wiseman er því eini hvíti bandaríski karlmaðurinn í ferðinni. Fyrra tunglverkefni NASA var kennt við Apollo, tunglguð forn-Grikkja. Artemis var tvíburasystir hans, gyðja veiða, víðáttu og tunglsins. Artemis-áætlunin er rétt að hefjast, en óhætt er að segja hana metnaðarfulla. Ferð Artemis II er annar liður áætlunarinnar en sá fyrsti var árið 2022 þegar ómannaða geimfarið Artemis I var sent á braut um tunglið. Mönnuð tunglferð er áætluð 2028 sem partur af Artemis IV. Markmiðið er að koma upp varanlegri bækistöð á tunglinu sem leggur grunn að frekari landvinningum í sólkerfinu.Jared Isaacman, nýr yfirmaður NASA, sagði að Artmis-áætluninni væri ætlað að taka upp þráðinn frá fyrri Apollo-geimferðum Bandaríkjamanna en hún varð til þess að fyrstu mennirnir lentu á tunglinu árið 1969.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More