Advertisement
Fimm ára fangelsi fyrir að stinga sofandi mann í rúmi sínu
World

Fimm ára fangelsi fyrir að stinga sofandi mann í rúmi sínu

March 31, 2026
RÚV
Scroll

Ríkisborgari frá Kólumbíu var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og húsbrot í Reykjavík í október 2025.Auk fangelsisvistar þarf ákærði að greiða þolanda 2,5 milljónir króna í miskabætur og tæpar fjórar milljónir í málsvarnarlaun.Maðurinn var ákærður fyrir að hafa farið í heimildarleysi inn á heimili manns í kjallaraíbúð í Reykjavík.

Fimm ára fangelsi fyrir að stinga sofandi mann í rúmi sínu

Hann gekk inn í svefnherbergi mannsins sem lá þar sofandi, veittist að honum og stakk hann ítrekað með hníf í höfuð og líkama.Í ákærunni segir að þolandi árásarinnar hafi vaknað og tekist að standa upp en við það hélt ákærði atlögunni áfram og kýldi hann með krepptum hnefa. Þolandi hlaut sentimetra sár á utanverða hægri kinn, bólgu á hægri kinn og fjögur sár á hægri öxl.Ákæran á hendur manninum sneri einnig að vopnalagabroti sömu nótt þar sem hann bar eftirlíkingu af skotvopni á almannafæri og faldi hana í buxnastreng sínum.Hann þarf að afplána fimm ára fangelsisvist að frádregnum þeim tíma sem hann hefur setið í gæsluvarðhaldi. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald í október á síðasta ári. Þá eru fíkniefni gerð upptæk og eftirlíking af skotvopni.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More