Ferðaþyrstir Íslendingar stefna í sól eða á skíði
World

Ferðaþyrstir Íslendingar stefna í sól eða á skíði

March 30, 2026
RÚV
Scroll

Fjöldi Íslendinga er á leið eða er þegar farið úr landi yfir páskahelgina, flestir í sól eða á skíði. Bílastæðin við Leifsstöð eru að fyllast og bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ biðla til ferðalanga um að leggja ekki í íbúagötur.Þau eru að fyllast í þessum töluðu orðum. Skírdagur og föstudagurinn langi eru að fyllast, það er aðeins laust á laugardag og sunnudag en við hvetjum fólk til að bóka áður en það kemur á flugvöllinn,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála hjá Isavia, um stöðuna á bílastæðum við flugvöllinn.

Ferðaþyrstir Íslendingar stefna í sól eða á skíði

Þrjú þúsund stæði eru við völlinn en Grétar segir það aðeins gerast yfir páskahelgina að stæðin fyllist.Á sjötta tug ferða til KanaríeyjaMiðað við veðurfarið undanfarið er kannski ekki að undra að Íslendingar kjósi að verja páskahelginni undanfarið. Sólarstaðir suður í höfum eru enda vinsæll áfangastaður Íslendinga. Alls fara 56 flug til Kanaríeyja yfir páskahelgina, þar af 45 til Tenerife og 11 til Gran Canaria samkvæmt samantekt Isavia. 22 ferðir eru farnar til Alicante á Spáni og 16 til Barcelona.Skíðaferðir eru sömuleiðis vinsælar, miðað við fjölda fluga til borga sem liggja nálægt Ölpunum. 42 flug fara til Mílanó, 36 til Munchen og 24 til Zurich.Til marks um ferðaþorstann yfir páskahelgina þá fara um 280 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll yfir páskana, það er frá 28. mars til 10. apríl, en vikurnar tvær fyrir páskana voru farþegarnir 232 þúsund. Aukningin nemur því 20 prósentum.Biðla til fólks um að leggja ekki í íbúagötumÞeir sem grípa í tómt þurfa að skoða aðra kosti – eins og leigubíla, flugrútu, lagningarþjónustu eða einfaldlega að láta skutla sér. Svo gengur strætó á flugvöllinn en þá ber að hafa í huga að hann byrjar ekki að ganga fyrr en eftir að morgunflugin hafa tekið á loft.Þeir sem hugsa sér gott til glóðarinnar og spara sér kostnað með því að leggja í bílastæði í Reykjanesbæ og taka þaðan leigubíl þurfa að hafa í huga að það gera þeir í óþökk bæjarbúa og yfirvalda. Það er búið að vera töluvert um það að fólk kvarti yfir því að það sé verið að leggja í íbúagötum en það hefur eitthvað minnkað út af því að fólk er að fara minna erlendis,” segir Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs Reykjanesbæjar.Til stendur að sporna gegn þessu athæfi og var fyrsta skrefið stofnun bílastæðasjóðs Reykjanesbæjar. Enn á eftir að virkja sjóðinn en fyrst og fremst er honum ætlað að vinna gegn stöðubrotum. Þó er á döfinni að koma upp skiltum til að vekja athygli á að göturÞúsundir Íslendinga eru á faraldsfæti um helgina. Flestir stefna suður á bóginn í sól og snemmbúið sumar eða í Alpana á skíði. Bílastæði við Leifsstöð eru að verða full.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More