Felldu tillögu um skipun covid-rannsóknarnefndar
0
World

Felldu tillögu um skipun covid-rannsóknarnefndar

April 21, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Alþingi samþykkti í dag ný sóttvarnalög. Frumvarpið var samið eftir covid-faraldurinn og er yfirlýst markmið þeirra að bregðast við veikleikum sem komu í ljós í faraldrinum, gera ákvarðanatöku skýrari og gagnsærri og tryggja betra jafnvægi milli skilvirkra sóttvarna og réttinda almennings.Helstu breytingarnar felast fyrst og fremst í því að stjórnsýsla sóttvarna er endurskipulögð.

Felldu tillögu um skipun covid-rannsóknarnefndar

sóttvarnalæknir verður skipaður beint af ráðherra og ný farsóttanefnd sett á laggirnar sem leggur til aðgerðir, á meðan núverandi sóttvarnaráð er lagt niður.Þingmenn Miðflokksins greiddu atkvæði gegn frumvarpinu en þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sátu hjá.Vildu meiri völd til þingsinsÞingmenn Sjálfstæðisflokks í velferðarnefnd, Sigurður Örn Hilmarsson og Rósa Guðbjartsdóttir, lögðu fram tillögu þar sem lagt var til að skipuð yrði rannsóknarnefnd sem myndi fara yfir aðgerðir stjórnvalda í covid-faraldrinum. Myndi sú rannsókn bæði taka til aðgerða sem voru til þess fallnar að skerða frelsi og ferðir almennings og einnig áhrif ákvarðana á atvinnulíf og efnahagsmál. Sú tillaga var felld.Helsta gagnrýni stjórnarandstöðunnar á frumvarpið sneri að aðkomu þingsins í sóttvarnarástandi. Kveðið er á um að ráðherra beri að upplýsa velferðarnefnd þingsins um leið og sóttvarnartakmarkanir eru kynntar og er einnig kveðið á um skýrslugjöf til þingsins. Það þótti stjórnarandstöðunni ekki nóg og sögðu að með frumvarpinu sé embættismönnum falið mikið vald, meðal annars að taka íþyngjandi ákvarðanir.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More