Fella niður skólahald eftir hótun um skot­árás
0
World

Fella niður skólahald eftir hótun um skot­árás

April 22, 2026
Scroll

Posted 4 hours ago by

Skólahald í að minnsta kosti 20 skólum í sænska bænum Borlänge var fellt niður í dag eftir að ofbeldishótun barst bæjaryfirvöldum. Samkvæmt heimildum Aftonbladet snerist hótunin um skotárás.Í umfjöllun sænska ríkissjónvarpsins, SVT, segir að hótunin hafi borist í nótt. Samkvæmt heimildum SVT beindist hún gegn einum skóla í bænum. Eftir að hún barst ákvað starfsfólk sveitarfélagsins að loka nokkrum skólum af ólíkum skólastigum í öryggisskyni en þó ekki öllum.

Fella niður skólahald eftir hótun um skot­árás

Ákvörðun um hvaða skólum yrði lokað var tekin út frá staðsetningu þeirra, að því er segir í frétt Aftonbladet.Í það minnsta fjórir einkaskólar í bænum hafa einnig ákveðið að fella niður skólahald í dag.Sænska lögreglan hefur hafið rannsókn á hótuninni en segir það of snemmt að segja til um hvort alvara sé að baki henni. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglu.Nemendur fengu upplýsingar á mánudagJörgen Olsson bæjarstjóri í Borlänge sagði á blaðamannafundi í morgun að nemendur hefðu fengið upplýsingar á mánudaginn sem hafi vakið óhug. Það séu upplýsingar sem hafi gengið milli nemenda. Þær hafi svo borist sveitarfélaginu seinni partinn í gær og bein hótun hafi svo komið í nótt. Því hafi verið ákveðið að loka skólunum til að tryggja öryggi bæði nemenda og starfsfólks skólanna.Jimmy Spolander starfandi lögreglustjóri sagði á sama fundi að hótunin væri tekin alvarlega. Hann vildi hins vegar ekki tjá sig um hvers eðlis hótunin er, að öðru leyti en því að hún beinist að skólasamfélaginu. Enginn liggi ennþá undir grun.Þá vildi lögreglan ekki tjá sig um hvort málið tengdist manni sem lýst var eftir í bænum nýlega. Ekki sé ástæða til að draga of miklar ályktanir.Um 45 þúsund búa í Borlänge sem er um 200 kílómetrum norður af höfuðborginni Stokkhólmi.Fréttin var uppfærð með upplýsingum frá blaðamannafundi.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More