0
Faldi fjögur kíló af kannabisefnum í Airfryer-kassa
April 13, 2026
Posted 3 days ago by
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots.Manninum var gert að sök að hafa reynt að taka við tæplega fjórum og hálfu kílói af marijúana sem komið hafði verið fyrir í kassa sem átti að innihalda Airfryer-ofn.Lögregla skipti efnunum út fyrir gerviefniÍ dómi Héraðsdóms segir að í janúar 2025 hafi lögreglu borist tilkynning frá tollgæslunni um að pakki sem skráður væri á ákærða hefði verið stöðvaður í tollskoðun og að við skoðun hans hefðu fundist meint kannabisefni.
Lögreglan sótti pakkann samdægurs til tollgæslunnar, fjarlægði efnin og skipti þeim út fyrir gerviefni.Daginn eftir sótti ákærði pakkann í vöruhús í Hafnarfirði. Lögregla elti hann þegar hann ók þaðan á brott og var hann handtekinn fyrir utan heimili sitt í Reykjavík.Í skýrslutöku hjá lögreglu sagði ákærði að hann hefði verið að sækja pakkann fyrir vin sinn. Hann gat þó hvorki sagt til um hvers vegna hans nafn væri á pakkanum né gat hann gefið upp nafn vinar síns.Þá kvaðst ákærði ekki hafa opnað pakkann á neinum tímapunkti en auk þess sagðist hann ekki hafa vitað hvað var í honum. Hann hafi verið beðinn um að sækja pakkann fyrir annan mann sem hann hefði viljað hjálpa.Neitaði sök við þingfestinguVið þingfestingu málsins í september 2025 neitaði ákærði sök samkvæmt ákæru. Hann krafðist aðallega sýknu en til vara vægustu refsingar sem lög leyfðu og að hún yrði skilorðsbundin að fullu.Maðurinn hefur nú verið dæmdur til að sæta fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.Fíkniefnin sem fundust í pakkanum sem maðurinn sótti hafa verið gerð upptæk. Þá þarf ákærði einnig að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.