Advertisement
Færri nýta sér neyðarskýli borgarinnar
World

Færri nýta sér neyðarskýli borgarinnar

April 2, 2026
RÚV
Scroll

Ásókn í neyðarskýli á vegum Reykjavíkurborgar hefur minnkað undanfarið ár. Deildarstjóri segir það sýna árangurinn af breyttri stefnu í málefnum heimilislausra.Til skoðunar er að draga úr þörf fyrir neyðarrymi samhliða husæðisuppbyggingu.81 gisti í neyðarskýlum borgarinnar í janúar og febrúar í ár – en rúmlega hundrað á sama tíma í fyrra.Verið að grípa fólk fyrr en áðurSoffía Hjördís Ólafsdóttir, deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg í málefnum heimilislausra, segir að breytt stefna borgarinnar birtist meðal annars í því að gripið sé fyrr inn í þegar einstaklingar lenda í heimilisleysi.Hvort sem það er með húsnæðisumsóknum eða finna önnur úrræði sem henta einstaklingum,“ segir Soffía Hjördís.Hún segir Reykjavíkurborg einnig hafa verið að byggja upp eigið húsnæði, sem hluta af aðgerðaáætlun í málefnum heimilislausra.Borgin rekur þrjú neyðarskýli fyrir heimilislausa sem eru opin frá fimm síðdegis til tíu næsta morgun.Soffía Hjördís segir að markmiðið sé að innan þriggja daga frá því að fólk hefur nýtingu í neyðarskýlu sé búið að koma á fundi með félagsráðgjafa og fylla út húsnæðisumsókn.Og bara ítrekun á að þetta er neyðarúrræði.“Húsnæði fyrst en samþætta þarf líka alla þjónustuFélags- og húsnæðismálaráðherra kynnti stefnu í málefnum heimilislausra í febrúar.Hún fylgir hugmyndafræðinni um húsnæði fyrst, sem hefur virkað vel erlendis.Breytt stefna Reykjavíkurborgar byggir einnig á þeirri hugmyndafræði.Hvað er það fleira sem þarf að koma til, en húsnæði, til að útrýma heimilisleysi?Það þarf að vera aðgengi að húsnæði og það þarf að vera fjölbreyttur stuðningur sem er fólginn líka í því þegar fólk er komið inn í húsnæði.

Færri nýta sér neyðarskýli borgarinnar

Og þar skiptir samþætting miklu máli. Hvort sem það er félagsþjónusta, heilbrigðisþjónusta, félagasamtök. Við þurfum öll að standa saman til að bæta lífsgæði einstaklinga,“ segir Soffía.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More