Færri fóru til útlanda en gistinóttum fjölgaði
March 29, 2026
RÚV
Töluverður fjöldi landsmanna ætlar að fylgjast með almyrkvanum í ágúst, samkvæmt könnun Ferðamálastofu. Örlítið færri fóru í utanlandsferðir í fyrra en árið áður, en gistinætur voru fleiri.Vinsælustu erlendu áfangastaðir Íslendinga í fyrra voru Spánn og Portúgal. Þangað fór rúmlega helmingur þeirra sem fóru út fyrir landsteinana. Næst á eftir voru Bretlandseyjar, Danmörk, Bandaríkin og Kanada, Þýskaland og Ítalía.78 landsmanna ferðuðust til útlanda, þremur prósentustigum færri en árið áður en gistinætur voru fleiri.
Meðalfjöldi gistinótta erlendis var tæplega 25 og hefur aldrei áður mælst hærri. 65 sögðust ekki ætla að fækka utanlandsferðum vegna aukinnar umræðu um umhverfismál.Dreifa megi ferðamönnum betur um landiðUm 84 ferðuðust innanlands í fyrra. Vinsælasta afþreyingin sem fólk greiddi fyrir var sund eða jarðböð, sem rúmlega helmingur nýtti. Nær helmingur sagðist oftast fara á sömu staði þegar ferðast væri innanlands þrátt fyrir að 75 vilji upplifa nýja staði.Þetta telur Ferðamálastofa benda til þess að tækifæri séu til að dreifa ferðamönnum betur um landið.Fjórðungur sagðist ætla að ferðast meira innanlands í ár en í fyrra og 27 sögðust ætla að ferðast meira til útlanda. Margir Íslendingar virðast ætla að fylgjast með almyrkvanum í ágúst.Rúmlega 20 sögðust ætla að fylgjast með honum heiman frá, örlítið færri ætluðu líklega að ferðast til að sjá hann og álíka margir kváðust áhugasamir um almyrkvann en vissu ekki hvar væri best að sjá hann.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.