Advertisement
Færri ferðir strætisvagna um páskana
World

Færri ferðir strætisvagna um páskana

March 31, 2026
RÚV
Scroll

Talsverðar breytingar verða á ferðum strætisvagna næstu daga vegna páskahátíðarinnar.Ferðir vagna Strætós á höfuðborgarsvæðinu dragast saman um páskana. Á skírdag, föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum verða ferðir samkvæmt sunnudagsáætlun. Ferðir á laugardaginn verða eins og vant er og næturstrætó gengur eins og venjulega um páskahelgina.Landsbyggðarstrætó gengur samkvæmt sunnudagsáætlun á skírdag og annan í páskum en laugardagsáætlun föstudaginn langa og páskadag.

Færri ferðir strætisvagna um páskana

Ferðir á leiðum 63, 64, 65 og 81 falla niður til og með 6. apríl. Leiðir 91, 92, 93 og 96 ganga ekki á rauðum dögum en verða farnar eins og venjulega á laugardag.Leið 94 gengur samkvæmt áætlun föstudaginn langa og annan í páskum en ekki skírdag og páskadag.Þetta kemur fram í yfirliti Strætós um strætósamgöngur um páskana. Þar kemur einnig fram að enginn innanbæjarakstur verður í Reykjanesbæ yfir páskadaga og enginn akstur á Akureyri nema á leið A6 á skírdag og annan í páskum.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More