Fær ekki að vita netfangið hjá heimilislækninum sínum
April 8, 2026
RÚV
Íbúi á höfuðborgarsvæðinu sem vildi geta haft samskipti við heimilislækninn sinn í gegnum tölvupóst leitaði til úrskurðarnefndar um upplýsingamál þegar heilsugæslan neitaði að gefa upp netfang læknisins.Einstaklingurinn hafði samband við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í haust og bað um netfang heimilislæknis síns. Hann hugðist senda erindi á lækninn en taldi vefinn Heilsuveru ekki henta til þess.
Bæði væri takmarkað hversu langan texta væri hægt að skrifa á Heilsuveru og að auki taldi viðkomandi að erindi sitt ætti ekki erindi við aðra starfsmenn heilsugæslunnar en lækninn sinn, hvorki móttökuritara né annað starfsfólk.Heilsugæslan neitaði að upplýsa um netfangið. Það sætti hann sig ekki við og kærði ákvörðunina til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Kærandinn taldi sig eiga rétt á að geta átt milliliðalaus samskipti við heimilislækninn sinn, sem væri opinber starfsmaður. Jafnframt tók viðkomandi fram að heilsufarsupplýsingar væru mjög viðkvæmar og persónulegar.Heilsugæslan andmælti kröfunni sem fyrr og sagði að tölvupóstsamskipti væru ekki talin nægilega örugg samskiptaleið fyrir miðlun heilsufarsupplýsinga. Auk þess væru allir starfsmenn bundnir þagnarskyldu og því væri Heilsuvera betur til þess fallin en tölvupóstur til að verja heilsufarsupplýsingar kærandans.Úrskurðarnefnd segir í niðurstöðukafla sínum að þrátt fyrir að stjórnvöldum sé skylt að upplýsa um nöfn og starfssvið starfsmanna sé ekkert ákvæði um að þau verði að gefa upp netföng eða vinnusímanúmer þeirra.Nefndin sagði að þó að vinnunetföng teldust ekki til viðkvæmra upplýsinga um einkamálefni starfsmanna gæti meðferð þeirra haft þýðingu fyrir starfsaðstæður og samband starfsmanns og vinnuveitanda. Sumar stofnanir birta netföng starfsmanna en úrskurðarnefndin sagði að það væri hverju stjórnvaldi í sjálfsvald sett að ákveða hvort það upplýsti um netföngin eða ekki. Kæru mannsins var því hafnað og fær hann ekki uppgefið netfang heimilislæknisins síns.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.