Fá fjórar milljónir til að mæta skertri þjónustu Strætós í Reykjanesbæ
World

Fá fjórar milljónir til að mæta skertri þjónustu Strætós í Reykjanesbæ

March 30, 2026
RÚV
Scroll

Fjögur verkefni sem eiga að bæta almenningssamgöngur milli byggða fá 25 milljónir króna í verkefnastyrki. Alls bárust átta umsóknir sem hljóðuðu samtals upp á 74 milljónir.Eitt verkefnið sem fær styrk er viðbragð við því að dregið var úr þjónustu landsbyggðarstrætisvagna við Reykjanesbæ. Stoppistöðvum á leiðinni í gegnum Reykjanesbæ frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur var fækkað úr átta í tvær.

Fá fjórar milljónir til að mæta skertri þjónustu Strætós í Reykjanesbæ

Þar á meðal voru felldar niður ferðir inn í Ásbrú. Margir íbúar þar höfðu treyst á strætó til að komast í nám og til vinnu á höfuðborgarsvæðinu. Þetta olli mikilli óánægju íbúa og bæjaryfirvalda.Reykjanesbær fær fjórar milljónir króna til að mæta kostnaði við að tengja leiðakerfi innanbæjarstrætisvagna við landsbyggðarstrætisvagna. Bæta þurfti tveimur morgunferðum við núverandi leiðakerfi til að gefa íbúum Reykjanesbæjar færi á að nýta ferðir landsbyggðarstrætisvagna.Múlaþing fékk hæsta styrkinn, tíu milljónir, til að koma á reglubundnum almenningssamgöngum milli Egilsstaða og Djúpavogs. Það er gert til að mæta þörfum um 30 nemenda frá Djúpavogi sem stunda nám í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Engar almenningssamgöngur hafa verið í boði milli staðanna yfir vetrartímann.Sex milljónir voru veittar til að Þingeyjarsveit gæti boðið upp á akstur barna og ungmenna í tómstundastarf innan sveitarfélagsins. Húnabyggð fékk fimm milljónir til að auka samstarf og samgang í íþróttastarfi innan sveitarfélagsins. Þannig á að gera börnum og ungmennum kleift að stunda íþróttir hjá Hvöt á Blönduósi og Tindastóli á Sauðárkróki óháð búsetu.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More