Advertisement
Eygló Fanndal tilnefnd sem lyftingakona ársins í Evrópu
World

Eygló Fanndal tilnefnd sem lyftingakona ársins í Evrópu

March 31, 2026
RÚV
Scroll

Eygló Fanndal Sturludóttir er meðal tíu kvenna sem tilnefndar eru sem lyftingakonur ársins hjá Evrópska lyftingasambandinu, EWF. Verðlaunin verða veitt á Evrópumeistaramótinu í Georgíu um miðjan apríl.Eygló, sem var kjörin íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttafréttamanna í janúar, varð Evrópumeistari í -71 kílóa flokki á EM í fyrra. Hún var þá fyrsti Íslendingurinn til að verða Evrópumeistari í opnum aldursflokki í ólympískum lyftingum.Undanfarið hefur Eygló glímt við meiðsli og mun til að mynda ekki geta varið titil sinn á Evrópumeistaramótinu sem er fram undan.Í síðustu viku greindi Eygló frá því á samfélagsmiðlum sínum að síðustu vikur hefðu verið erfiðar hjá henni.

Eygló Fanndal tilnefnd sem lyftingakona ársins í Evrópu

Eftir að hafa rifið brjóskþófa á æfingu tók við sjúkrahúsvist þar sem Eygló endaði á að falla í yfirlið.Niðurstöður rannsókna voru þó nokkuð jákvæðar og bakslagið vonandi aðeins nokkrar auka vikur í endurhæfingu. Þannig birti Eygló mynd af sér á leið á fyrstu æfinguna á samfélagsmiðlum í gær og virðist því komin á ról.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More