0
ESB til í að ræða undanþágur frá fiskveiðilöggjöf við Íslendinga
April 23, 2026
Posted 2 hours ago by
Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, segir í viðtali við Financial Times að Evrópusambandið gæti boðið Íslandi undanþágur (e. exemptions) frá fiskveiðistefnu sambandsins til að flýta fyrir umsóknarferlinu. Það er klárlega svigrúm fyrir sveigjanleika,“ segir Kadis.Álíka skilaboð hafa komið frá öðrum embættismönnum innan ESB, þar á meðal við stækkunarstjóra ESB, Mörtu Kos, í viðtali við RÚV.Aðspurður um það hvort ESB sé tilbúið til að veita Íslandi undanþágur sagði Kadis svo vera og um það yrði rætt í umsóknarferlinu.
Hann sagði að hægt væri leysa ágreiningsefni líkt um samnýtingu á sameiginlegum fiskistofnum.Einnig horft til NoregsKadis sagði í viðtalinu við FT að sveigjanleiki varðandi fiskveiðistefnu sambandsins gæti gert það fýsilegri kost fyrir Noreg til að ganga í sambandið. Þá er nefnt í greininni að fiskveiðar séu einnig ásteytingarsteinn í samskiptum Evrópusambandsins og Bretlands, eftir að Bretar gengu úr sambandinu.Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er sögð horfa til enn frekari stækkunar Evrópusambandsins, sér í lagi til þjóða sem eru nærri Norðurheimskautinu. Áhugi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á Grænlandi hefur kallað á endurskoðun á stefnu sambandsins í öryggis- og varnarmálum. Þá er innrás Rússa í Úkraínu einnig nefnd sem ástæða þess að Evrópusambandið vilji stækka og þétta raðirnar meðal þjóða í Evrópu.Íslendingar sagðir uggandi vegna áhuga Trumps á GrænlandiAðild að ESB er sögð umdeild á Íslandi í grein FT vegna fiskveiðistefnu Evrópusambandsins. Breytt landslag í öryggis- og varnarmálum er tiltekið sem ástæða þess að Íslendingar efni til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna í ágúst. Sem herlaus þjóð séu Íslendingar áhyggjufullir yfir áhuga Bandaríkjastjórnar á Grænlandi, segir í FT.Fiskveiðistefnan verði einfölduðFiskveiðistefna Evrópusambandsins hefur verið gagnrýnd fyrir að vera flókin og óhagkvæm. Í sameiginlegu bréfi sem 12 aðildarríki, þar með talið Þýskaland og Frakkland, sendu til Kadis, er varað við því að stjórnsýslan í kringum fiskveiðar sé orðin svo flókin að hún sé farin að skapa erfiðleika í daglegum rekstri.Einn ónafngreindur diplómati og heimildamaður FT sagði að fiskveiðistefnan væri mjög flókin og gamaldags. Hann bætti við að hann hefði ekki enn hitt neinn í Brussel sem skildi stefnuna.Kadis segir að fiskiveiðistefnan verði einfölduð, nútímavædd og taki mið af kolefnislosun í sjávarútvegi. Henni verði ætlað að ná fram endurnýjun í greininni og regluverkið verði einfaldara og þar verði ekki eins mikil skriffinnska og nú.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.