Advertisement
Enn sitja Ítalir eftir með sárt ennið
World

Enn sitja Ítalir eftir með sárt ennið

March 31, 2026
RÚV
Scroll

Ítalía mætti Bosníu og Hersegóvínu í úrslitaleik um sæti á HM í kvöld. Lengi vel leit út fyrir ítalskan sigur því Moise Kean kom liðinu yfir á 15. mínútu 1-0. Það var svo ekki fyrr en á 79. mínútu að Haris Tabakovic fann jöfnunarmark fyrir Bosníu og Hersegóvínu og staðan eftir venjulegan leiktíma enn 1-1. Hvorugt liðið skoraði í framlengingunni og því gripið til vítaspyrnukeppni.

Enn sitja Ítalir eftir með sárt ennið

Þar skoruðu Bosníumenn úr öllum sýnum spyrnum en Ítalir klikkuðu á tveimur. Ítalir sjá því á eftir HM-sætinu sem Bosnía og Hersegóvína fær.Ítalía hefur ekki verið með á HM síðan 2014.Tékkar náðu sætinu einnig í vítakeppniÞá mættust Danmörk og Tékkland einnig í úrslitaleik. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma, 2-2, og því var leiknum framlengt. Enn var staðan 2-2 að henni lokinni og vítaspyrnukeppni næst á dagskrá. Þar reyndust Tékkar seigari því Danir skoruðu aðeins úr einni spyrnu en Tékkar úr þremur. Tékkland er því á leið á HM. Fleiri úrslitaleikir voru spilaðir í kvöld og Svíþjóð náði sæti á mótinu með 3-2 sigri á Póllandi. Loks hafði Tyrkland betur gegn Kósóvó, 1-0, og fær farseðil á HM að launum.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More