Englendingar hlaða Glódísi lofi
0
World

Englendingar hlaða Glódísi lofi

April 17, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta mun slá leikjamet íslenska landsliðsins á morgun þegar Ísland tekur á móti Englandi í undankeppni HM. Það verður landsleikur númer 146 hjá Glódísi sem fer þá upp fyrir Söru Björk Gunnarsdóttur. Glódís segist afar stolt af því að ná þessum áfanga á morgun.Auðvitað er það skemmtilegt og gríðarlega mikill heiður að hafa fengið að spila svona oft fyrir hönd Íslands og eiga vonandi á morgun met í því.

Englendingar hlaða Glódísi lofi

Það er eitthvað sem ég er afar stolt af og það verður gaman að fá að gera þetta á heimavelli á morgun fyrir framan okkar fólk, með mitt nánasta fólk í stúkunni sem hefur staðið með mér í gegnum allan ferilinn og svo auðvitað með stelpurnar inni á vellinum,“ sagði Glódís Perla þegar hún var spurð út landsleikjametið sem hún slær á morgun.Glódís Perla Viggósdóttir slær á morgun landsleikjamet Íslands í fótbolta þegar hún spilar landsleik númer 146 og bætir met Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Lucy Bronze í enska landsliðinu og Sarina Wiegman landsliðsþjálfari fara fögrum orðum um Glódísi.En hvað stendur upp úr á landsliðsferli Glódísar hingað til, eða öllu heldur hvað henni finnst eftirminnilegast? Það er margt sem stendur upp úr og margar minningar sem koma upp. En kannski helst verð ég að nefna þegar ég byrjaði ég fyrsta landsleikinn minn því það kom mér svo ótrúlega mikið á óvart. Ég mun aldrei gleyma því að hafa fengið þetta traust að byrja fyrsta landsleikinn minn aðeins nýorðin 17 ára. Það var mjög skemmtilegt og ég er virkilega þakklát fyrir að hafa fengið það traust svona snemma.“Hefur mikla aðdáun hversu erfitt þetta erLucy Bronze hægri bakvörður enska landsliðsins er ein af stærstu stjörnum liðsins. Hún leikur nú með Chelsea en hefur áður spilað með stórliðum á borð við Lyon, Barcelona og Manchester City. Hún hefur spilað 146 landsleiki fyrir England á síðustu þrettán árum.Ég var einmitt búin að velta því fyrir mér að við Glódís erum með mjög svipaðan landsleikjafjölda. Þannig ég hef góðan skilning og mikla aðdáun á því hversu erfitt það er að ná þessu og að spila svona marga leiki fyrir landið þitt,“ sagði Lucy Bronze.Glódís Perla Viggósdóttir slær á morgun landsleikjamet Íslands í fótbolta þegar hún spilar landsleik númer 146 og bætir met Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Lucy Bronze í enska landsliðinu og Sarina Wiegman landsliðsþjálfari fara fögrum orðum um Glódísi.Hún hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu lengur en ég hef verið í sama hlutverki hjá Englandi. Hún hefur átt lengri landsliðsferil en ég. Ég held að það segi mikið um það hvernig persónuleiki hún er og leikmaður hvað Georgia Stanway samherji minn í landsliðinu og hennar hjá Bayern talar vel um Glódísi og hverstu mikill leiðtogi hún er.“Stoltar af því að taka þátt í þessum áfangaleik GlódísarVið erum mjög stolt af því að vera þátttakendur í þessum stóra áfanga hjá eins frábærum leikmanni og mikilvægum og Glódís er,“ sagði Lucy Bronze.Sarina Wiegman landsliðsþjálfari Englands tekur í sama streng og Bronze um Glódísi Perlu.Glódís Perla Viggósdóttir slær á morgun landsleikjamet Íslands í fótbolta þegar hún spilar landsleik númer 146 og bætir met Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Lucy Bronze í enska landsliðinu og Sarina Wiegman landsliðsþjálfari fara fögrum orðum um Glódísi.Auðvitað er þetta frábært augnablik bæði fyrir fótboltann á Íslandi og fyrir hana sjálfa svo. En það sem þekkjum frá henni og líka það sem við höfum heyrt frá Georgiu Stanway sem spilar með henni hjá Bayern að þá er stórkostlegur leiðtogi. Okkur finnst hún vera frábær leikmaður og afar mikilvæg fyrir íslenska liðið. Þetta verður frábært augnablik að spila á heimavelli á móti okkur og fagna þessum flotta áfanga á sínum ferli,“ sagði Sarina Wiegman landsliðsþjálfari Englands um Glódísi.Landsleikur Íslands og Englands hefst klukkan 16:30 á Laugardalsvelli á morgun. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More