0
„Elsku mamma“ — Karl konungur minnist móður sinnar þegar 100 ár eru liðin frá fæðingu hennar
April 21, 2026
Posted 5 hours ago by
Karl Bretakonungur minnist Elísabetar II móður sinnar í dag, þegar hún hefði orðið 100 ára. Á sama tíma verður kynnt lokaáætlun minnismerkis um drottninguna, þjóðhöfðingjann sem lengst sat að völdum. Elísabet lést 96 ára að aldri í september 2022 eftir sjötíu ára valdatíð. Elsku mamma,“ segir Karl í þegar uppteknu ávarpi þar sem hann kveður móður sína ætíð hafa verið stefnuföst og fullkomlega trú þjóðinni sem hún þjónaði.
Vályndi veraldarinnar nú um stundir hefði valdið Elísabetu hugarangri að mati Karls sem kveðst leita huggunar í þeirri trú hennar að manngæskan hafi alltaf betur og að nýir bjartir dagar séu við sjóndeildarhringinn. Við getum öll lagt okkar lóð á vogarskálarnar við að gera heiminn aðeins betri í dag en í gær, eins og 14 ára gömul Elísabet sagði í sínu fyrsta opinbera ávarpi,“ segir Karl. Því var sérstaklega beint að breskum börnum sem höfðu verið send út í sveitir landsins vegna loftárása þýska hersins. Myndhöggvarinn Martin Jennings á veg og vanda að minnismerkinu um Elísabetu, bronsstyttu sem sýnir hana sem unga konu í hátíðarklæðum og byggir á frægu málverki af henni eftir ítalska listamanninn Pietro Annigoni. Það var afhjúpað 1955. Robin Janvrin, sem var einkaritari drottningar og formaður minningarnefndarinnr, segir líkneskið sýna fagra og táknræna ímynd hennar. Styttan á stalli verður 7,3 metra há og mun standa við inngang minningarreits í St James's Park, skammt frá Buckingham-höll. Einnig verður reist smærri stytta af Filippusi, eiginmanni Elísabetar, sem sýnir hann klæddan í sjóliðsforingjabúning horfa upp til styttu drottningarinnar. Karl og fleiri úr konungsfjölskyldunni skoða frumdrög að styttunum og uppdrætti af minningareitnum í breska þjóðminjasafninu, British Museum, í dag. Elísabet fæddist ekki drottningarefniEkki var gert ráð fyrir því að Elizabeth Alexandra Mary, sem fæddist 21. apríl 1926, yrði drottning. Hún var eldri dóttir Alberts hertoga af Jórvík, yngri sonar Georgs V konungs, og Elísabetar Bowes-Lyon. Við andlát Georgs tók Játvarður, föðurbróðir Elísabetar, við völdum en sagði af sér skömmu síðar svo hann gæti gengið að eiga Wallis Simpson, fráskilda bandaríska konu. Þá tók faðir Elísabetar við sem Georg VI og hún því ríkisarfi. Georg lést 6. febrúar 1952 þá varð Elísabet drottning Breta, þjóðhöfðingi á annað hundrað milljóna manna um víða veröld innan samveldisins. Elísabet giftist Filippusi, grískættuðum frænda sínum og hertoga af Edinborg, árið 1947. Hann lést 2021, 99 ára að aldri. Þau áttu saman fjögur börn: Karl konung, Önnu prinsessu, Andrew Mountbatten-Windsor og Játvarð jarl af Wessex.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.