Elísabet sló Íslandsmetið og náði lágmarki á EM
0
World

Elísabet sló Íslandsmetið og náði lágmarki á EM

April 19, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Elísabet Rut Rúnarsdóttir sló seint í gærkvöld Íslandsmetið í sleggjukasti á háskólamóti í Kaliforníuríki Bandaríkjanna þegar hún kastaði 72,89 metra. Hún bætti fyrra Íslandsmet þar með um 1,48 metra, en hún og Guðrún Karitas Hallgrímsdóttir höfðu deilt fyrra metinu sem var 71,41 metri.Elísabet er þar með líka komin með öruggan keppnisrétt á Evrópumótinu í frjálsíþróttum sem verður í Birmingham í ágúst.

Elísabet sló Íslandsmetið og náði lágmarki á EM

EM lágmarkið var 71,50 metrar og miðað við Evrópulistann eins og hann stóð fyrir helgi er Elísabet með áttunda besta árangurinn af Evrópubúum fyrir EM eins og sakir standa.Þriðji Íslendingurinn með keppnisrétt á EMHún er þriðji Íslendingurinn sem er komin með öruggan keppnisrétt á Evrópumótinu í sumar því áður höfðu Baldvin Þór Magnússon náð EM lágmarkinu í 10.000 metra hlaupi og Hilmar Örn Jónsson í sleggjukasti. Góðar líkur eru á því að nokkrir keppendur muni bætast í íslenska hópinn áður en kemur að EM í ágúst.Elísabet Rut var frá vegna meiðsla að stórum hluta á síðasta ári, en kemur greinilega í miklu stuði til baka. Hún jafnaði Íslandsmet Guðrúnar Karítasar 20. mars, en Guðrún hafði sett það met sex dögum fyrr. Nú hefur Elísabet svo bætt metið enn frekar og virðist til alls líkleg á næstunni.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More