Eldur kviknaði í bíl á Bíldshöfða

Eldur kviknaði í bíl á Bíldshöfða

Einn af dælubílum Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.RÚV / Hólmfríður Dagný FriðjónsdóttirSlökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk útkall kl. 01:20 í nótt vegna bíls sem stóð í ljósum logum á bílaplaninu við Húsgagnahöllina á Bíldhöfða.Bíllinn er talinn hafa verið mannlaus en vegfarendur hringdu í neyðarlínuna og tilkynntu um brunann, samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn dælubíll var sendur á staðinn og slökkvistarf gekk hratt og vel fyrir sig. Eldsupptök eru ókunn en altjón varð á bifreiðinni.

March 28, 2026

Read Full Article
Source Information
RÚV
RÚV
Iceland
Lean left