Él framan af en léttir til þegar líður á daginn
April 10, 2026
RÚV
Útlit er fyrir stöku él framan af degi en það léttir til norðanlands með morgninum og sunnantil eftir hádegi. Það blæs dálítið framan af en dregur úr vindi þegar líður á daginn. Hiti verður yfirleitt rétt yfir frostmarki í dag. Það hvessir á morgun, sérstaklega á Suðausturlandi og fer að snjóa fyrir austan síðdegis á morgun eftir él norðan- og austantil um morguninn.Veðurspáin er svohljóðandi:Suðvestan 5-13 m/s og stöku él, en léttir til norðanlands og einnig sunnantil eftir hádegi.
Suðlæg eða breytileg átt 3-8 og léttskýjað seinnipartinn. Hiti 1 til 5 stig yfir daginn, en frystir víða í kvöld. Norðlægari í nótt með dálitlum éljum fyrir norðan, en þurrt sunnanheiða. Vaxandi norðaustanátt á morgun, 10-18 m/s undir kvöld, en heldur hvassara í vindstrengjum á Suðausturlandi. Dálítil él eða slydduél norðan- og austantil, en fer að snjóa fyrir austan eftir hádegi. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst.Horfur á landinu næstu daga:Gengur í ákveðna norðanátt á laugardag og allvíða snjókoma eða slydda um tíma, en þurrt að mestu sunnanlands. Minnkandi vindur á sunnudag með snjókomu eða slyddu, en þurrt sunnantil. Fyrripart næstu viku er síðan spáð aðgerðalitlu veðri.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.