Ekki verið að grípa heyrnarskert börn – Tugir týnast í kerfinu
April 1, 2026
RÚV
Formaður Heyrnarhjálpar – landssamtaka heyrnaskertra segir brýnt að hefja heyrnaskimun í grunnskólum að nýju, sem allra fyrst. Tugir barna eru taldir vera með ógreinda heyrnaskerðingu í kjölfar þess að heyrnaskimun við upphaf grunnskólagöngu árið 2012, líkt og fjallað var um í Kveik í gærkvöld.Miðað við rannsóknir hjá nágrannaþjóðum okkar þá virðast vera um 50 til 80 börn týnd í kerfinu með heyrnarskerðingu og jafnvel á biðlista fyrir málþroskaröskun, ADHD eða annað.
Þannig að þetta er mjög þörf umræða,“ segir Telma Sigtryggsdóttir, formaður Heyrnarhjálpar - landssamtaka heyrnarskertra. Hún segir gögn frá öðrum ríkjum benda til þess að þau séu líklega mun fleiri.Heyrnarskert börn eigi að eiga sömu möguleika og jafningjar þeirra.Mér finnst þetta bara skelfilegt, því heyrn er jafn mikilvæg og sjón, bæði fyrir nám og félagslíf. Mér finnst að heyrnarskert börn eigi að eiga sömu möguleika og önnur börn á þeirra reki, og þurfi ekki að berjast og berjast og líða illa.“Telma segir umfjöllun þáttarins ekki hafa komið á óvart. Ísland sé eftirbátur nágrannaríkjanna varðandi skimun og gagnasöfnun um heyrnarskerðingu.Þau halda kannski að barnið sé utan við sig“Síðan skimun í grunnskólum var hætt 2012 hefur börnum sem eru í eftirliti vegna heyrnarskerðingar fækkað úr 250 árið 2015 í 220 árið 2024. Miðað við fólksfjölgun ættu þau að vera um 300.Börnin voru mun fleiri þegar verið var að skima og svo datt þessi tala niður um heilan helling og það segir okkur bara mjög mikið að það er ekki verið að grípa þessi börn,“ segir Telma.Þetta er svo falið. Þau fatta ekki að þau heyra ekki ákveðin hljóð, þessi börn og foreldrar þeirra barna sem hafa ekki verið að glíma við heyrnarskerðingu sjálf. Þau fatta þetta ekki heldur. Þau halda kannski að barnið sé eitthvað utan við sig eða að það sé eitthvað annað.“Vandamál sem ekki er hægt að hunsaVið hvetjum stjórnvöld eindregið til að hefja heyrnarskimun grunnskólabarna á ný og veita þessari fötlun meiri athygli heldur en raunin er.“Alma Möller heilbrigðisráðherra segir að koma eigi heyrnarskimun á aftur við fjögurra eða sex ára aldur. Ekki er vitað hvenær það verður en vinnuhópur á vegum Embættis landlæknis metur nú hvort og hvernig væri vænlegt að sinna slíkum skimunum.Samkvæmt skriflegu svari landlæknisembættisins við fyrir spurn fréttastofu er sú vinna langt komin og áætlað að henni ljúki á vormánuðum.Ég er að reyna að vera jákvæð núna,“ segir Telma. Ég trúi því að þetta sé vandamál sem er ekki hægt að hunsa lengur. Það þarf að hjálpa þessum börnum. Þau eiga bara rétt á því.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.