Ekki sjálfkrafa refsivert að senda inn falska dánartilkynningu
World

Ekki sjálfkrafa refsivert að senda inn falska dánartilkynningu

April 10, 2026
RÚV
Scroll

Lögfræðingur segir ekki augljóst hvaða lög gætu hafa verið brotin þegar fölsk dánartilkynning var send inn og birt í Morgunblaðinu. Hún segir samhengi skipta mestu máli.Sölvi Guðmundarson var ranglega sagður látinn í dánartilkynningu í Morgunblaðinu í dag. Sölvi vakti sjálfur athygli á þessu á Facebook og nafngreindi þar konu sem hann telur standa að baki tilkynningunni.

Ekki sjálfkrafa refsivert að senda inn falska dánartilkynningu

Sölvi hefur, ásamt minnst sex öðrum, kært konuna fyrir umsáturseinelti. Sölvi átti í árslöngu sambandi við konuna en því lauk fyrir rúmlega tveimur árum.Lögreglan á Suðurnesjum tilkynnti skömmu eftir hádegi að aðili hafi verið handtekinn vegna dánartilkynningarinnar. Sá hafi þegar verið grunaður um og sætt rannsókn vegna fjölda annarra tilvika umsáturseineltis.Það er ekki sjálfkrafa refsivert að gera þetta, það að senda inn falsaða dánartilkynningu, það er samhengið sem myndi mögulega gera það refsivert,“ segir María Rún Bjarnadóttir lögfræðingur.Hún segir að annars vegar geti þetta fallið undir ákvæði um eltihrella, sé hegðunin endurtekin, eða ákvæði um heimilisofbeldi eigi hún sér stað í tengslum við sambandsslit. Sjálf hefur María Rún kallað eftir endurskoðun á löggjöf um friðhelgi einkalífs, sem hún segir að gæti náð yfir tilvik sem þessi.Morgunblaðið hefur beðið Sölva, aðstandendur hans og lesendur afsökunar á birtingu dánartilkynningarinnar og leitar leiða til að koma í veg fyrir að svona geti komið fyrir aftur.María segist vona að atvikið hafi ekki of mikil áhrif.Auðvitað er þetta fyrirkomulag á bæði dánartilkynningum og minningargreinum í íslenskum fjölmiðlum nokkuð sérstakt og fyrir því er auðvitað gríðarlega löng hefð og byggir á samfélagslegu trausti og gagnkvæmrri virðingu fyrir því hvað þetta er í raun og veru viðkvæmt mál,“ segir María.Mér finnst nú viðbrögð fjölmiðilsins sýna það að þetta er eitthvað sem þau taka alvarlega eða og og ég vona að þetta verði ekki til þess að þið þurfið einhvern veginn að draga úr þessu trausti sem þeim þessi fallega hefð byggir á.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More