Ekki nóg að það sé rjómablíða
0
World

Ekki nóg að það sé rjómablíða

April 21, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Óljóst er hvort aðstæður leyfi siglingu á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyjahafnar á meðan utanvegahlaupinu The Puffin Run stendur. Hlaupið verður haldið í níunda skipti 2. maí.Katrín Laufey Rúnarsdóttir, skipuleggjandi hlaupsins, segir þátttakendur ekki þurfa að hafa áhyggjur.Við tökum bara einn dag í einu og ef þessi vika er góð veðurlega séð er hægt að taka stöðuna út frá því.“ Enn eru 11 dagar í hlaupið og segir Katrín að erfitt sé að gera ráð fyrir veðuraðstæðum svo langt fram í tímann en þau séu viðbúin öllu.Dæla þarf sandi úr Landeyjarhöfn svo hægt sé að sigla þaðan og það er aðeins mögulegt þegar vel viðrar.

Ekki nóg að það sé rjómablíða

Veðurspáin lítur vel út en ekki er nóg að það sé rjómablíða að sögn Katrínar Laufeyjar. Ölduhæð og aðstæður í eru nauðsynlegar svo Herjólfur komist inn í Landeyjahöfn.Höfnin hefur verið lokuð í 80 daga það sem er af ári og Katrín segir að Vestmannaeyingar séu að verða brjálaðir yfir því að þurfa alltaf að taka Herjólf frá Þorlákshöfn.Það tekur um 35 mínútur fyrir Herjólf að sigla í Landeyjahöfn, samanborið við tæpar þrjár klukkustundir í Þorlákshöfn.Skilyrði til dýpkunar í Landeyjahöfn eru hagstæð næstu daga og því vonar Katrín að hægt sé að sigla frá Landeyjahöfn á næstunni: Við erum alltaf bjartsýn, jákvæð og brosandi.“Hlaupið fer fram sama hvaðKatrín segir að hlaupið fari fram, sama hvernig viðrar. Búist er við margmenni þar sem uppselt er í hlaupið en hátt í 1800 manns eru skráðir, þar af um 200 erlendir keppendur. Hún segir gistingu og bókanir á veitingastaði vera að uppbókast í Eyjum og að búist sé við mikilli umferð á eyjunni.Einnig er stefnt á að láta Teistuna, bát Ribsafari Vestmannaeyja sem rúmar um 50 manns, sigla á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyjahafnar ef veður leyfir.Herjólfur sneri aftur til siglinga í dag en Breiðafjarðarferjan Baldur sigldi í stað Herjólfs í dag og í gær vegna viðgerðar á mótor Herjólfs.Fari svo að siglt verði frá Þorlákshöfn á keppnisdag þarf að færa ferðirnar til þar sem fyrsta ferð frá Þorlákshöfn fer rétt fyrir ellefu og væru þátttakendur því ekki mættir að Heimaey fyrr en um tvöleytið, tæpum tveimur tímum eftir ræsingu hlaupsins.Viðburði í Höllinni aflýstHreimur, Magni og hljómsveit ætluðu að troða upp í Höllinni í Vestmannaeyjum á laugardagskvöldið en viðburðinum hefur verið aflýst vegna dræmrar forsölu. Katrín segir það vera mjög algengt, Vestmannaeyingar eru frægir fyrir að kaupa miða á síðustu stundu,“ sem leiði til þess að aflýsa þurfi viðburðum þar sem ekki er vitað hvort áhugi sé á þeim.Katrín hvetur fólk þó til að koma á föstudeginum í stað keppnisdags á laugardegi til þess að vera alveg öruggt, en verkalýðsdagurinn 1. maí gæti leitt til þess að mörg séu í lengra helgarfríi.Gögn fyrir keppendur The Puffin Run verða afhent í Sportvörum í Kópavogi, föstudaginn 24. apríl.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More