0
„Ekki eins og þetta sé eftir lýtalækni“
April 20, 2026
Posted 2 hours ago by
Íslensk kona á sextugsaldri, sem fór í fegrunaraðgerð á vegum íslenska fyrirtækisins HEI Medical á síðasta ári, situr uppi með stór og ljót ör og þarf að gangast undir leiðréttingaraðgerð. Kastljós ræddi í kvöld við konuna sem kýs að koma ekki fram undir nafni.Þetta er ekki eins og þetta sé eftir lýtalækni,“ segir konan sem er kölluð Marta í viðtalinu.Hún fór í andlitslyftingu í Istanbúl í Tyrklandi með milligöngu íslenska fyrirtækisins HEI Medical í október 2025.
Marta fór í neðri andlitslyftingu í von um að líða betur með sjálfa sig.Ég var komin með svolítið mikla undirhöku og þetta var var farið að plaga mig svo ég ákvað að leita til lýtalæknis og fara í aðgerð.“En af hverju að fara til Tyrklands?Ég þekki stelpu sem fór til Tyrklands í gegnum HEI til þessa læknis sem ég fór til og hún var mjög ánægð og útkoman var góð svo ég hafði samband við HEI og fór á vegum þeirra til Tyrklands.“HEI Medical sérhæfir sig í milligöngu um heilbrigðisþjónustu erlendis svo sem tannlæknaþjónustu, hárígræðslu, magaermi og fegrunaraðgerðir.Marta segist fyrst og fremst hafa ákveðið að fara til Tyrklands þar sem miklu munar á verði eða um 50 prósentum.Fékk strax tíma í aðgerðTveimur vikum eftir að Marta setti sig í samband við HEI var búið að ákveða aðgerðardag á spítalanum Medical Park í Istanbúl og hún búin að panta sér flug út. Hún átti stuttan fund með lýtalækni í gegnum fjarfundabúnað og sendi myndir af sér.Marta flaug út á fimmtudegi og átti að fara í aðgerð á laugardegi. Við komuna til Istanbúl var henni tjáð að læknirinn yrði ekki við á laugardeginum og að aðgerðin yrði strax á föstudeginum. Hún var látin bíða afskiptalaus allan föstudaginn en seinni partinn var henni sagt að aðgerðin yrði á laugardeginum eftir allt saman þrátt fyrir að læknirinn ætti ekki að vera við þá.Það kom enginn til Mörtu á föstudeginum til að fara með henni yfir aðgerðina, skoða hana eða teikna á hana fyrir aðgerð. Það talaði enginn við mig. Mér leið mjög skringilega og bað ítrekað um að fá að tala við lækninn.“Svæfð án þess að nokkur kæmi við hanaÁ laugardeginum var komið að aðgerðardegi.Það kemur hjúkrunarkona um morguninn, rétt fyrir átta, til að setja upp æðalegg og ég er ekki að horfa og svo þegar hún er búin og ég sný mér að henni sé ég að hún er búin að sprauta mig. Ég spyr hana með hverju hún hafi verið að sprauta mig og þá var hún að sprauta mig með kæruleysislyfi sem ég vissi ekki að ég myndi fá og mér var ekki sagt neitt.“Svo er farið með Mörtu á skurðstofu. Þegar ég kem inn á skurðstofuna tekur svæfingalæknir á móti mér og ég segi strax við hann að ég vilji hitta lækninn. Mér var farið að líða einkennilega og svo man ég ekkert meira fyrr en ég vakna. Ég var ekkert látin vita að það væri verið að fara að svæfa mig. Hann sagði ekkert við mig.“Lýtalæknirinn sem átti að gera þessa aðgerð, hann kom aldrei til þín? Teiknaði á þig? Skoðaði þig? Nei, nei, ekkert. Þú varst bara svæfð? Já, ég var bara svæfð.“Strax komin með sýkinguDaginn eftir kemur lýtalæknirinn sem átti að gera aðgerðina inn á stofu til hennar ásamt hópi af starfsfólki.Þá er farið að taka af mér umbúðirnar, aðstoðarmaðurinn hans gerir það. Læknirinn er bara að horfa á.“ Marta hafði sterkt á tilfinningunni þarna að læknirinn hefði ekki gert aðgerðina sjálfur. Hún hitti hann aldrei á aðgerðardeginum og hann lét aðstoðarmann sinn alfarið um að skoða örin.Það er fyrst tekið af vinstra megin og það lítur vel út en svo er tekið af hægra megin og þá kemur í ljós að ég er með sýkingu. Ég er orðin mjög bólgin og aðstoðarmaðurinn segir við mig að ég fái sýklalyf og verði á spítalanum eina nótt í viðbót.“Það gengur eftir og Marta er útskrifuð af sjúkrahúsinu á mánudeginum. Hún dvaldi á hóteli í Istanbúl næstu daga. Hún var verkjuð fyrstu tvo dagana en leið svo ágætlega.Engin eftirfylgni á spítalanumMarta fór á Medical Park fyrir heimför til Íslands til að láta skipta um umbúðir hjá hjúkrunarfræðingi en læknirinn leit ekkert meira á hana. Eftir það var hún útskrifuð og flaug heim til Íslands rúmri viku eftir aðgerð.Ljót og stór örÞegar hún kom heim tók hún af sér umbúðirnar og brá þá verulega. Mikið ósamræmi var á milli hægri og vinstri hliðar. Þá hafði hún fundið fyrir óþægindum í vinstri kinninni.Tiber, læknirinn sem á að hafa gert aðgerðina, kemur nokkrum sinnum á ári til Íslands á vegum HEI til að kynna þjónustu sína og ná í nýja viðskiptavini. Fyrir tilviljun kom hann nokkrum vikum eftir að Marta kom heim. Hún heyrir því í HEI og bókar tíma hjá lækninum.Ég segi honum að ég sé ekki ánægð með þetta en hann segir að ég þurfi að gefa þessu tíma. Hann segir að þetta líti allt vel út og ég bendi honum á kinnina á mér og hann segir mér að hafa ekki áhyggjur af þessu. Þetta muni hverfa og ég eigi að nudda þetta.“Marta hlýddi því og nuddaði samviskusamlega á hverjum degi. Í janúar, þremur mánuðum síðar, var henni hætt að standa á sama.Þetta bara stækkaði og í framhaldi af því ákvað ég að panta tíma hjá lýtalækni hér heima til að láta skoða mig.“Með dren í andlitinu í nokkra mánuðiMarta leitaði til Davíðs Jenssonar lýtalæknis á Dea Medica.Hann áttaði sig strax á hvað þetta var? Hvað var þetta?Þetta var dren. Drenið var skilið eftir í kinninni á mér.“Davíð bókaði Mörtu strax í aðgerð til að fjarlægja drenið. Hún hlaut ekki skaða af því en honum brá þegar hann tók á móti henni.Örin, þau liggja að mínu mati ekki nógu vel og ná of langt niður á háls. Það eru töluverð svokölluð hundseyru sem við sjáum á hálsi hennar eftir aðgerðina sem er eitthvað sem maður vill helst ekki sjá eftir þetta inngrip,“ segir Davíð.Hann vill ekki dæma lækninn út frá þessu eina atviki. Fólk grói misvel og sumir séu með undirliggjandi sjúkdóma sem valdi því að örin sjáist meira en hjá öðrum. En svona fljótt á litið fannst manni eins og það væri kannski ekki nægilega vel vandað til verka.“Davíð segir að andlitslyfting eins og Marta gekkst undir sé með flóknari aðgerðum sem gerðar eru. Mjög mikilvægt sé að fara vel yfir með fólki hvers konar aðgerð það er að fara í.En er mikilvægt að koma við sjúklinginn og finna hvernig allt liggur áður en farið er í svona aðgerð?Tvímælalaust. Það skiptir gríðarlega miklu máli að hitta sjúklinginn og koma við hann, teikna á hann og skipuleggja hvaða núönsum maður ætlar að beita í aðgerðinni. Þetta er með lengri aðgerðum sem við gerum, tekur hátt í fjóra tíma.Eftirfylgni skiptir miklu máliDavíð segir að aðgerðin sé bara helmingurinn af ferlinu.Síðan kemur eftirfylgnin og hún er ansi þétt eftir þetta inngrip. Í mínu tilfelli hitti ég mína sjúklinga mjög oft, tvisvar sinnum vikuna á eftir og svo í hverri viku næstu fjórar vikur þar á eftir. Ef allt gengur vel þá fer maður svo að lengja í endurkomunum eftir það og svo yfirleitt er síðasta endurkoman sirka ári eftir aðgerðina. Bæði er þetta til að fylgjast með hvernig hlutirnir gróa og skiptir miklu máli að fylgja fólki þétt eftir.Hann segir einkennilegt að sjúklingum sem fari erlendis í aðgerðir sé ekki fylgt betur eftir. Ef eitthvað kemur upp á séu þessir sjúklingar bjargarlausir.Mál Mörtu sé alls ekki einsdæmi. Við höfum hér á þessari stöð fengið til okkar nokkur tilfelli af einstaklingum sem hafa lent í vandamálum eftir aðgerðir, sýkingum eða sárarofi eða slíku þar sem þau vita í rauninni ekkert hvert þau eiga að leita og vissulega þá tökum við á móti þeim og hjálpum þeim eins vel og við getum en þetta fer að jaðra við að vera eitthvað annað en læknisfræði þegar svona er.“Hvetur fólk til að hugsa sig tvisvar umMarta segist sjá eftir því að hafa farið í aðgerðina og að hafa ekki kynnt sér málið betur.Maður þarf að skoða það mjög vel hvert maður er að fara. Ég hafði ekkert áhyggjur þegar ég fór út, annars hefði ég ekki farið því að ég ég hélt að læknirinn myndi taka á móti mér þegar ég kæmi á spítalann og við myndum eiga samtal og að hann myndi skoða mig. Sem hann gerði svo aldrei. Svona eftir á, þegar maður er kominn heim, þá hugsar maður bara, lenti ég í þessu? Af hverju fór ég ekki og labbaði bara út? Mér finnst þetta mjög alvarlegt mál,“ segir hún að lokum.Spítalinn svaraði henni aldreiEftir að Marta fór til Davíðs sendi hún póst á bæði Medical Park og HEI Medical. Hún lét fylgja með bréf Davíðs og myndbönd sem hann tók af dreninu í kinninni á henni. Hún fór fram á að fá aðgerðina endurgreidda og bætur.Hún fékk aldrei svar frá spítalanum en Guðjón Sigurbjartsson, framkvæmdastjóri HEI Medical, hafði samband við spítalann fyrir hennar hönd.Guðjón var gestur Kastljóss í kvöld. Hann sagði að spítalinn hefði boðist til að endurgreiða henni aðgerðina að fullu. Þá ætli spítalinn að greiða fyrir hana nýtt flug og bjóða henni í svokallaða leiðréttingaraðgerð til að laga það sem fór úrskeiðis síðast. Þá sagði Guðjón að læknirinn sem ætti að hafa gert aðgerðina hefði verið rekinn af spítalanum vegna atviksins. Vinnubrögð hans væru óásættanleg.Hundruð Íslendinga farið í aðgerð í TyrklandiLæknirinn, Tiber, hafði fram til þessa sinnt flestum þeim Íslendingum sem hafa farið í aðgerð með milligöngu HEI í Tyrklandi. Hann hefur nokkrum sinnum komið til Íslands að kynna starfsemi sína og til stóð að hann kæmi hingað til lands á vegum HEI 2. maí næstkomandi. Guðjón segir að búið sé að aflýsa þeim viðburði.Guðjón segir að um 100 Íslendingar hafi farið í fegrunaraðgerð á spítalanum. Hann beri enn fullt traust til spítalans og að ekki standi til að hætta samstarfi við hann.Marta hefur ekki ákveðið hvort hún þiggur að fara í leiðréttingaraðgerð á Medical Park eftir fyrri reynslu sína.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.