0
Ekkert verður af samruna Arion og Kviku
April 15, 2026
Posted 2 hours ago by
Forviðræðum Kviku banka og Arion banka við Samkeppniseftirlitið vegna samrunaáforma er lokið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæðiArion banka og Kviku banka. Fulltrúar bankanna tveggja funduðu með Samkeppniseftirlitinu í dag og að forviðræðum loknum var afstaða Samkeppniseftirlitsins kynnt. Stjórnir bæði Arion og Kviku banka töldu að ekki gæti orðið af samruna bankanna í ljósi afstöðu Samkeppniseftirlitsins.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, segir niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins vera vonbrigði og koma á óvart. Mikil og vönduð vinna var lögð í forviðræður við Samkeppniseftirlitið og lögðu félögin fram margvíslegar lausnir til að stuðla að virkri og öflugri samkeppni á fjármálamarkaði.“Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir að mikil vinna hafi farið í forviðræður bankanna við Samkeppniseftirlitið. Hann segir að viðræðurnar hafi verið gagnlegar en að nú liggi það fyrir að ekkert verði af samrunanum. Í ljósi þess hve samruni við Arion hefði getað skapað mikil verðmæti fyrir hluthafa og viðskiptavini töldum við eðlilegt að kanna hvort slíkur samruni gæti orðið að veruleika. Nú liggur niðurstaða forviðræðna fyrir og Kvika heldur ótrauð áfram á sinni spennandi vegferð.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.