0
Ekkert standi í vegi fyrir hvalveiðum í sumar
April 22, 2026
Posted 3 hours ago by
Hafi einhver hug á því, á grunni þessarar ráðgjafar og reglugerðarinnar, og uppfylla þau skilyrði sem þar eru sett þá verður veiddur hvalur í sumar,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, sem hefur boðað frumvarp um bann við hvalveiðum.Í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar, sem var tilkynnt í morgun, er lagt til að ekki verði veiddar fleiri en 150 langreyðar í sumar.Þetta var viðbúið.
Ég vissi svo sem að þetta væri að koma,“ segir Hanna Katrín.Staðan er auðvitað sú að það er í gildi reglugerð sem þáverandi matvælaráðherra, Bjarni Benediktsson, setti undir árslok 2024. Sú reglugerð er í gildi og felur í sér að heimildir til að veiða hval skuli byggja á ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar.“Bjarni Benediktsson, þá starfandi matvælaráðherra, veitti leyfi fyrir hvalveiðum til fimm ára í lok 2024. Leyfin framlengjast árlega um eitt ár og heimilt er að flytja allt að 20 af veiðiheimildum hvers árs yfir á næsta ár.Mitt mat er að það er alls ekki ákjósanleg staða en hins vegar, ef það er eitthvað sem við höfum lært síðustu ár, er að við þurfum að taka þær ákvarðanir sem við tökum þurfa að hvíla á mjög sterkum lagalegum grunni,“ segir Hanna Katrín. Til standi að leggja fram frumvarp um bann við hvalveiðum í vetur.Frumvarpið byggi til að mynda á mikilli upplýsingaöflun og ítarlegri skýrslu starfshóps um stjórnsýslu og lagaumgjörð hvalveiða. Hanna Katrín segir að í ljósi gildandi reglugerðar, um fimm ára leyfi til hvalveiða, þurfi að taka tillit til atvinnuréttinda fólks.En jafnframt taka mig af þeirri staðreynd að núverandi hvalveiðilög eru barn síns tíma þegar kemur að dýravelferðinni. Síðan auðvitað sú staðreynd að, þegar við erum að huga að svona, þá þurfum við að átta okkur á því hvað sjálfbærar veiðar fela í sér – varðandi dýravelferðina, umhverfismálin og hinn hagræna þátt.“Hvalveiði áformuð í sumarEnginn hvalur var veiddur við Íslandsstrendur síðustu tvö ár. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þáverandi matvælaráðherra, veitti leyfi eftir að hvalveiðitímabilið átti að hefjast árið 2024 og varð því ekkert af veiðunum.Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals hf. sagði síðasta vor að hvalveiðar myndu ekki borga sig það sumarið og því var enginn hvalur veiddur í fyrra. Kristján sagði Morgunblaðinu í gær að Hvalur hf. stefndi á veiðar í sumar.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.