Einn látinn eftir snjóflóð á Grænlandi
April 4, 2026
RÚV
Fjórir urðu undir snjóflóði á Grænlandi síðdegis í dag. KNR, ríkisútvarp Grænlands, greinir frá. 17 ára unglingur sem var meðal þeirra lést á sjúkrahúsi.Lögreglunni á Grænlandi barst tilkynning um slysið klukkan 15:45 að staðartíma í dag, eða 16:45 að íslenskum tíma. Sex einstaklingar voru á vélsleðaferð á fjallinu Qassi, suður af Nuuk, þegar fjórir þeirra hurfu í snjóflóði.
Viðbragðsaðilar hófu leit að fjórmenningunum en hinir tveir úr hópnum voru fastir á toppi fjallsins.KNR hefur eftir Karsten Højrup Kristensen, varðstjóra hjá lögreglunni, að einstaklingarnir fjórir hafi fundist illa haldnir, kaldir og með merki um ofkælingu í snjónum um 17:30 að staðartíma. Þeir voru því fluttir til Nuuk-flugvallar og þaðan á sjúkrahús.Lögreglan á Grænlandi greindi frá andláti 17 ára unglingsins. Embættið segir tvo aðra hafa verið lagða inn á sjúkrahús, þó ekki í lífshættu, og að sjá fjórði sé ómeiddur.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.