0
Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa
April 13, 2026
Posted 4 hours ago by
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákærur á hendur Eimskipafélagi Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf. vegna sölu félaganna á gámaflutningaskipunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þess er krafist að félögin verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.Þar segir einnig að héraðssaksóknari hafi fellt niður rannsókn á framkvæmdastjóra Rekstrarsviðs Eimskipa vegna sölu skipanna og réttarstöðu hans sem sakbornings í málinu og málinu gagnvart honum sé þar með lokið.Umhverfisstofnun kærði málið til héraðssaksóknara árið 2020.
Kveikur fjallaði um sölu skipanna Goðafoss og Laxafoss í september sama ár og greindi frá því að Eimskip hefði notað alræmdan millilið, fyrirtækið GMS, til þess að kaupa skipin til að komast fram hjá evrópskum reglum og farga skipunum á sandströnd við Indland.Í tilkynningunni segir að Eimskip telji sig hafa fylgt í einu og öllu lögum og reglum í söluferli skipanna sem voru seld til áframhaldandi rekstrar en ekki til endurvinnslu.Eimskip fagnar því að óvissu gagnvart starfsfólki hafi nú verið eytt og mun taka til varna fyrir dómstólum.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.