„Ég er var um mig. Mér líður illa“
World

„Ég er var um mig. Mér líður illa“

April 8, 2026
RÚV
Scroll

Vilhjálmur Bjarnason fyrrverandi alþingismaður segir tuga milljóna miskabótakröfu á hendur athafnamönnunum Björgólfi Thor Björgólfssyni og Birgi Má Ragnarssyni vegna meintra njósna vera hóflega.Vilhjálmur og Ólafur Kristinsson lögmaður hafa stefnt tvímenningunum fyrir njósnir, brot gegn rétti til einkalífs, umsáturseinelti og brot á persónuvernd. Þeim hefur báðum verið afhent stefnan og er stefnt fyrir héraðsdóm Reykjavíkur 28.

„Ég er var um mig. Mér líður illa“

maí. Málið er í rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi.Kveikur greindi frá því í apríl í fyrra að Björgólfur og Birgir hefðu látið eftirlitsfyrirtækið PPP fylgjast með fólki árið 2012, Vilhjálmur og Ólafur voru í þeim hópi og meðal annars var setið um heimili þeirra.Enginn ætti að þurfa að líða fyrir njósnirUm okkur var njósnað og ég tel að enginn maður eigi að þurfa að líða fyrir njósnir af þessu tagi,“ segir Vilhjálmur.Nú er komið um ár síðan þið urðuð þessa fyrst áskynja - hvaða áhrif hefur þetta haft á þig og þína? Við skulum segja að ég byrja að líta vel í kringum mig fyrir utan húsið heima hjá mér, hvort það sé eitthvað óeðlilegt þar. Ég er var um mig, mér líður beinlínis illa yfir því að eiga þetta hugsanlega í vændum,“ segir Vilhjálmur.Vill hindra að þetta endurtaki sigHann segir tilgang stefnunnar ekki síst vera að reyna að hindra að eitthvað viðlíka endurtaki sig. Ég tel að íslenskt viðskiptalíf eigi ekki að þróast með þessum hætti, eins og þarna kom fram.“Vilhjálmur segist engin samskipti hafa átt við Birgi og Björgólf í mörg ár og ekki síðan þáttur Kveiks var sýndur fyrir tæpu ári.Hógvær talaVilhjálmur krefst 66 milljóna króna af Björgólfi og sömu upphæðar af Birgi í miskabætur. Krafa Ólafs er sú sama og einnig krefjast þeir vaxta frá desember 2012, auk greiðslu alls málskostnaðar.Spurður um upphæðina sem krafist er í miskabætur segir Vilhjálmur hana byggja á því að þetta sé tvöfaldur sá kostnaður sem lagður hafi verið í njósnirnar. Bætur eru gjarnan reiknaðar einu sinni til tíu sinnum á þessum grunni. Þannig að þetta er hógvær tala.“Beita efnahag sínum til að ráðast á aðrar persónurÍ stefnunni er meðal annars reifaður sá aðstöðumunur sem er á stefndu og stefnendum; að stefndu séu meðal auðugustu manna landsins, Vilhjálmur segir að þetta auki á alvarleika brotanna. Að menn séu að beita efnahag sínum til að ráðast á aðrar persónur. Það er alvarleiki brotanna.“Áttu von á að heyra frá þeim, áður en að málinu kemur í héraðsdómi Reykjavíkur í lok maí? Ef þeir hafa áhuga á að tala við mig, þá er alltaf hægt að ná í mig.“Vilhjálmur segir það ekki hafa verið erfiða ákvörðun að fara út í þennan málarekstur. Ég tel að menn eigi að láta á það reyna fyrir dómstólum þegar brotið er á persónu þeirra. Sem er líklega það dýrmætasta sem hver á. Ef það á að eyðileggja persónuna með njósnastarfsemi, þá erum við komin í samfélag sem ég tel að íslenskt viðskiptalíf og íslenskt mannlíf hafi ekki þurft að líða fyrir í nokkrar aldir.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More