„Ég er ekki fórnalamb Epstein“
April 9, 2026
RÚV
Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, þvertekur fyrir tengsl við barnaníðinginn Jeffrey Epstein og samverkakonu hans Ghislaine Maxwell né hafa haft vitneskju um glæpi þeirra. Þá kvaðst hún sjálf ekki vera meðal fórnarlamba hans. Frá þessu greindi hún í óvæntu ávarpi til þjóðarinnar í dag.Þar vísaði hún sögusögnum um að Epstein hefði kynnt hana fyrir eiginmanninum Donald Trump Bandaríkjaforseta á bug og sagði þær ekkert annað en illgjarnar árásir á orðspor sitt.
Slíkum lygum þyrfti að linna. Hún væri ekki vitni í málinu, hvað þá fórnarlamb.Ég er ekki fórnarlamb Epsteins.“Svaraði tölvupósti frá MaxwellForsetafrúin segist einungis hafa hitt Epstein í eitt skipti og átt ein tölvupóstasamskipti við Maxwell. Hún sagði tölvupóst sinn til Maxwell á árinu 2002 ekkert nema kurteisishjal og svar við pósti frá Maxwell, þar sem þær hafi þær verið í sömu kreðsum í New York.Í tölvupóstinum hrósar forsetafrúin forsíðumynd af JE, sem stendur fyrir Jeffrey Epstein, á New York Magazine og segist ekki geta beðið eftir að fara til Palm Beach.Í grein New York Magazine um Epstein er meðal annars haft eftir Donald Trump að Epstein sé frábær gaur“ og sé jafn hrifinn af fallegum konum“ og Donald sjálfur.Ættu að fá tækifæri til að segja sögur sínarMelania kallaði eftir því að fórnarlömb hans fengju að bera vitni um glæpi Epstein fyrir Bandaríkjaþingi.Hver og ein kona ætti að fá tækifæri til að segja sína sögu opinberlega, óski hún þess. Þá og aðeins þá mun sannleikurinn liggja fyrir.“Ávarpið má sjá í heild sinni hér fyrir neðan:Forsetafrú Bandaríkjanna þvertekur fyrir tengsl við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Hún kallar eftir því að fórnarlömb hans fái áheyrn í Bandaríkjaþingi, en segist ekki vera á meðal þeirra. Sögusögnum um annað verði að linna.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.