Duterte ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni
0
World

Duterte ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni

April 23, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn ICC hefur samþykkt að Rodrigo Duterte, fyrrverandi forseti Filippseyja, skuli ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni. Dómarar samþykktu einróma að ríkar forsendur væru til að telja að manndráp og tilraunir til manndráps hefðu verið framin í harkalegum aðgerðum í nafni stríðs gegn fíkniefnum í stjórnartíð Dutertes, frá 2016 til 2020.Talið er að allt að 30.000 liggi í valnum eftir aðgerðir síðasta áratugar.Duterte hafnar sök.

Duterte ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni

Hann var handtekinn í Manila, höfuðborg Filippseyja, í fyrra og fluttur til Haag. Ekki liggur fyrir hvenær áætlað er að réttarhöld hefjist né hvort Duterte verði viðstaddur.Hann ákvað að vera ekki í réttarsal við málsmeðferð um sakarefnin í febrúar því hann væri gamall, þreyttur og veikburða“, líkt og það var orðað í yfirlýsingu. Þá kvaðst hann einnig glíma við minnistap.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More