„Dreymir um að komast á HM í Brasilíu“
0
World

„Dreymir um að komast á HM í Brasilíu“

April 13, 2026
RÚV
Scroll

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta á mikilvægan leik á morgun gegn Úkraínu. Sigur gæti reynst gulls ígildi um að komast í umspil um sæti á HM í Brasilíu 2027. Þangað hefur Ísland aldrei komist en fjögur ár eru síðan liðið tapaði í umspili gegn Portúgal.Ísland er í afar sterkum riðli með Englandi, Spáni og Úkraínu. Eftir töp gegn Englandi og Spáni þykir líklegast að Ísland og Úkraína muni berjast um þriðja sætið, sem er umspilssæti.Þorsteinn Halldórsson segir liðið og teymið vera með stóra drauma um HM.Mig dreymir um að komast á HM.

„Dreymir um að komast á HM í Brasilíu“

HM í Brasilíu er ákveðinn toppur. Að alast upp við Brasilíu og brasilískan fótbolta. Það er mikill draumur að komast þangað. Fyrir leikmenn í landsliðinu er þetta stór draumur og stórt markmið að komast þangað.“En það er einn leikur í einu og þessi leikur gefur okkur ákveðið. Við í raun og veru fókusum á hann í dag en þegar maður horfir lengra þá kannski er maður alltaf að hugsa hvað við þurfum að gera til að komast á HM.“Hér má sjá viðtalið við Þorstein í heild.Þorsteinn Halldórsson stýrir íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta gegn Úkraínu á morgun. Leikurinn gæti reynst afar mikilvægur í baráttunni um að komast á HM sem fer fram í Brasilíu 2027. Þjálfarar og leikmenn leyfa sér að dreyma stórt.Snúa aftur á Laugardalsvöll.Kvennalandsliðið hefur leikið á Þróttarvelli síðustu landsliðsglugga. Þorsteinn segir kærkomið að snúa aftur á Laugardalsvöll. Blendigrasið (e. hybrid) er að reynast vel.Það eru tíu mánuðir síðan við spiluðum hérna síðast. Vonandi núna verður þetta bara reglulegara. Við spilum aftur hérna í júní. Völlurinn var bara fínn hérna áðan þó að það væri ekkert rosalega mikið grænt gras á honum. Þá var hann rennisléttur og það var fínt að æfa á honum. Hann er bara góður og ég er bjartsýnn á að við getum notið þess að spila á vellinum og náð í góð úrslit.“Þorsteinn ræddi einnig leikstíl úkraínska liðsins og segir að breytinga megi vænta á íslenska liðinu á morgun.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More