DNA rannsókn rekur óupplýst morð til Ted Bundy
April 1, 2026
RÚV
Ný rannsókn á erfðaefni hefur rakið óupplýst morð á táningsstúlku í Utah-fylki í Bandaríkjunum frá árinu 1974 til raðmorðingjans Ted Bundy. Þetta tilkynntu yfirvöld í Utah í dag.Hin 17 ára Laura Ann Aime hvarf á hrekkjavökukvöldi fyrir 51 ári síðan eftir að hún yfirgaf veislu ein til að fara í sjoppu. Um mánuði síðar fann fólk í göngu lík hennar við þjóðveg í American Fork-gljúfri.
Aime var bundin, barin og klæðalaus. Yfirvöld sögðu sönnunargögn benda til þess að henni hefði líklega verið haldið á lífi í nokkra daga eftir að henni hafi verið rænt kvöldið örlagaríka.Rannsakendur hafði lengi grunað Bundy og lögreglan sagði hann hafa játað sök í aðdraganda aftöku sinnar. Málið hefur þó verið opið því ekki var hægt að staðfesta sök hans, þangað til í dag. Hver var Ted Bundy? Ted Bundy var einn skæðasti raðmorðingi Bandaríkjanna. Dauði að minnsta kosti 30 kvenna og stúlkna á áttunda áratugnum hefur verið rakinn til hans. Hann myrti konur í stúdentahúsum, almenningsgörðum og víðar í nokkrum ríkjum landsins og olli skelfingu um landið allt.Handtaka Bundys vakti mikla athygli, meðal annars vegna þess að fólki fannst hann myndarlegur og heillandi.Bundy var dæmdur til dauða og tekinn af lífi í Flórída árið 1989.Rannsóknarstofu Utah-fylkis áskotnaðist ný tækni árið 2023 sem gerir rannsakendum kleift að vinna DNA úr sýnum, jafnvel þótt þau séu lítil, rýrnuð af aldri eða innihaldi DNA frá mörgum einstaklingum. Þetta segir Beau Mason, yfirmaður almannaöryggisdeildar Utah.Rannsóknarlögregla hafði varðveitt sönnunargögn úr máli Aime vandlega og tæknideild lögreglunnar gat, með nýju tækninni, einangrað DNA úr karlmanni úr sönnunargögnunum.Að sögn Mason passar DNA-sýnið úr máli Aime við erfðaefni Bundys.Þegar Laura Ann Aime var myrt stundaði Bundy nám í lögfræði við Háskólann í Utah.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.