Advertisement
Deildarmeistararnir byrja úrslitakeppnina á tapi
World

Deildarmeistararnir byrja úrslitakeppnina á tapi

April 1, 2026
RÚV
Scroll

Úrslitakeppni karla í körfubolta hófst í kvöld með tveimur leikjum í 8-liða úrslitum. Njarðvík vann Grindavík, 87-97, og Stjarnan hafði betur gegn KR, 97-86.Grindavík varð deildarmeistari á meðan Njarðvík endaði í 8. sæti. Það voru líka Grindvíkingar sem byrjuðu betur í kvöld og þeir leiddu með 10 stigum að loknum fyrsta leikhluta en munurinn var kominn niður í 4 stig í hálfleik, 41-37.Heimamenn komust svo 13 stigum yfir þegar þrjár mínútur voru eftir af þriðja leikhluta en þá skoruðu Njarðvíkingar 14 stig í röð og tóku forystuna.

Deildarmeistararnir byrja úrslitakeppnina á tapi

Gestirnir voru svo mun sterkari í lokafjórðungnum og unnu tíu stiga sigur, 87-97.Njarðvík leiðir því einvígið 1-0 en vinna þarf þrjá leiki til að komast í undanúrslit. Næsti leikur liðanna er í Njarðvík á mánudaginn, annan í páskum.Íslandsmeistararnir byrja velStjarnan er ríkjandi Íslandsmeistari og endaði í þriðja sæti deildarinnar í ár. Garðbæingar tóku því á móti liðinu sem varð í sjötta sæti; KR.Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en það voru KR-ingar sem leiddu að honum loknum, 51-55. Stjörnumenn voru hins vegar með öll völd í þriðja leikhluta og unnu hann 24-9, staðan þá orðin 75-64. Í fjórða leikhluta var aldrei vafi á hvort liðið myndi bera sigur af hólmi, Stjarnan vann 97-86 og er því 1-0 yfir í einvíginu.Annaðkvöld mætast Tindastóll og ÍR annars vegar og Valur og Keflavík hins vegar.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More