Danska konan fær sérmeðferð hjá Danska ríkisútvarpinu
0
World

Danska konan fær sérmeðferð hjá Danska ríkisútvarpinu

April 17, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Sjónvarpsþættir Benedikts Erlingssonar, Danska konan, eru í sýningum hjá Danska ríkisútvarpinu, DRTV, um þessar mundir. Þættirnir fá sérmeðferð hjá sjónvarpsstöðinni en undanþága hefur verið gerð á vanalegu fyrirkomulagi hennar.Danska leikkonan Trine Dyrholm stendur á hæð með útsýni yfir Reykjavík. Hún dansar og syngur,“ segir í grein á vef DR. En skyndilega truflar rödd hana og allt önnur mynd fyllir stærstan hlut skjásins – langar þig ekki að horfa á annan þátt á DRTV núna?“Þetta átti við um sýningar á fyrstu tveimur þáttum Dönsku konunnar hjá Danska ríkisútvarpinu, líkt og aðra sjónvarpsþætti.

Danska konan fær sérmeðferð hjá Danska ríkisútvarpinu

Fyrirkomulaginu hefur þó verið breytt og nú fær Dyrholm að syngja og dansa fullkomlega óáreitt af dönskum dagskrárþul og auglýsingu fyrir annað sjónvarpsefni.Tónlistin í Dönsku konunni er stór hluti af þáttunum en þeir bæði byrja og enda með Dyrholm að syngja uppi á Úlfarsfelli. Hún syngur meðal annars lög eftir Reykjavíkurdætur, Purrk Pilnikk, dj. flugvél og geimskip og hljómsveitina Sykur. Tónlistin úr þáttunum var síðan nýverið gefin út á vínylplötu.Þættirnir voru sýndir á RÚV.Árás á áhorfandann“Danska ríkisútvarpið er að skemma Dönsku konuna – nýju íslensku þáttaröðina með Trine Dyrholm í aðalhlutverki,“ skrifar Klaus Hansen á Facebook-síðu sinni og merkir Dyrholm við færsluna.Hansen er forstjóri kvikmyndasjóðsins FilmFyn.Kreditslisti þáttanna er alveg yndislegur og líka mikilvægur hluti af söguþræðinum og hugmyndinni á bakvið þættina. DR kýs síðan að birta auglýsingu fyrir spurningakeppni á meðan á kreditslistanum stendur. Þetta er ekki í lagi DR,“ skrifar Hansen.Með innleggi sínu hefur Hansen skjámynd af kreditslistanum líkt og hann birtist þegar fyrstu tveir þættirnir voru sýndir á DRTV.Það má hafa ýmsar skoðanir á kreditlistum og þörf sjónvarpsstöðva til að halda athygli áhorfenda. Í þessu tilfelli er þetta bara algjörlega röng nálgun. Áhorfandinn heldur ekki athyglinni, heldur verður hann bara pirraður yfir því að fá ekki að klára þáttinn.“Hansen gagnrýndi fyrirkomulagið einnig í útvarpsþáttunum K-Live í Danska ríkisútvarpinu.Þetta er líka bara árás á áhorfandann. Þetta er árás á mig sem áhorfanda, að vera truflaður þegar ég er að melta þetta,“ sagði hann þá.Dagskrárstjórinn viðurkennir vandannGagnrýni Hansens varð til þess að danski fjölmiðillinn Berlingske tók málið til umfjöllunar. Þá bættist Benedikt Erlingsson sjálfur í hóp þeirra sem gagnrýndu fyrirkomulagið.Á vef DR segir að ákvörðun hafi verið tekin um að fjarlægja auglýsingar fyrir aðra þætti á DRTV úr kreditslistum Dönsku konunnar. Það á bæði við um þá þætti sem eftir á að sýna og þá fyrstu tvo, sem nú eru aðgengilegir í streymi hjá DR.Eftir gagnrýni Hansens segist Mikkel Andersen, dagskrárstjóri DR, hafa áttað sig á að vissulega var mælt með dagskrárefni á truflandi hátt.Það er einmitt ástæðan fyrir því að við viðurkennum gagnrýnina og höfum fjarlægt þessar tillögur í þessum tveimur þáttum sem voru aðgengilegir,“ sagði Andersen í K-Live.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More