Dæmdur fyrir að reka barnshafandi dýralækni

Dæmdur fyrir að reka barnshafandi dýralækni

Landsréttur hefur snúið við dómi Héraðsdóms Suðurlands og dæmt vinnuveitanda til að greiða dýralækni tvær milljónir króna í skaðabætur fyrir að hafa vikið henni úr starfi þegar hún var barnshafandi, auk einnar og hálfrar milljónar í málskostnað.Ekki er heimilt að segja barnshafandi starfsmanni upp, nema gildar ástæður séu fyrir hendi. Í uppsagnarbréfinu sem konunni var afhent sagði að ástæður uppsagnarinnar væru nauðsynlegar skipulagsbreytingar og fyrirsjáanlegur samdráttur.Dýralæknirinn áfrýjaði dómi Héraðsdóms Suðurlands sem sýknaði félagið af öllum kröfum í janúar 2025. Konan hafði starfað sem dýralæknir hjá félaginu í rúm tvö og hálft ár er henni var sagt upp í febrúar 2022, en hún hafði í desember 2021 greint samstarfskonu sinni frá því að hún ætti von á barni.Samstarfskonan er ein af þremur hluthöfum félagsins og situr í stjórn þess. Hún undirritaði uppsagnarbréfið ásamt hinum stjórnendunum og þykir því óumdeilt að vitneskja hafi verið innan stjórnarinnar um að konan væri þunguð. Eigendur fyrirtækisins neituðu því fyrir Héraðsdómi Suðurlands að uppsögnin hafi tengst því að konan væri barnshafandi.Eigendum bar ekki saman um ástæður uppsagnarinnarSamstarfskonan sem vissi af þunguninni sagðist ekki minnast þess að það hafi verið rætt sérstaklega hvaða starfsmanni ætti að segja upp. Konan hafi aftur á móti verið með stystan starfsaldur og því augljóslega fyrsti kostur. Einnig nefndi hún að samstarfsörðugleikar gætu hafa haft áhrif á valið.Hinn stjórnarmaðurinn, sem fór með starfsmannamál félagsins, neitaði því aftur á móti að litið hefði verið til starfsaldurs en tók undir að konan hefði verið með stystan starfsaldur. Fyrst og fremst hafi henni verið sagt upp vegna fyrirsjáanlegs tekjusamdráttar innan fyrirtækisins, en óumdeilt er að félagið stóð frammi fyrir tekjusamdrætti vegna uppsagnar á samningi við annað fyrirtæki um blóðtöku úr fylfullum hryssum.Hann nefndi þó einnig að áfrýjandi hefði valdið ákveðinni úlfúð innan fyrirtækisins með því að segja sig frá kvöld- og helgarvöktum og hvetja aðra til að gera hið sama.Taldi Landsréttur því eigendum félagsins ekki bera saman um á hvaða grundvelli hefði verið ákveðið að segja konunni upp, að undanskildum samstarfsörðugleikum sem báðir hafi nefnt fyrir dómi, en ekki getið í uppsagnarbréfinu. Var með lengstan starfsaldurSjálf hélt konan því fram að fyrir utan eigendur félagsins hefði hún lengstan starfsaldur sem fullnuma dýralæknir er henni var sagt upp störfum. Landsréttur taldi það sannað en konan útskrifaðist sem dýralæknir árið 2017 og hóf störf hjá félaginu um haustið 2020. Annar dýralæknir, sem hélt starfi sínu hjá félaginu, hóf störf hjá félaginu um sumarið 2020 en kláraði fyrst dýralæknanámið árið 2021.Landsréttur telur félaginu því ekki hafa tekist að sýna fram á að hlutlæg og málefnaleg sjónarmið hafi legið til grundvallar fyrir uppsögn konunnar eða að uppsögn hennar hafi byggt á öðrum ástæðum en að hún hafi verið barnshafandi.

March 27, 2026

Read Full Article
Source Information
RÚV
RÚV
Iceland
Lean left