Celine Dion snýr aftur á svið
March 31, 2026
RÚV
Stórstjarnan og söngdívan Celine Dion tilkynnti aðdáendum sínum á samfélagsmiðlum í dag að hún myndi halda röð tónleika í París í Frakklandi í byrjun september. Dion sagði í tilkynningu sinni að heilsa hennar væri mun betri nú. Það væri besta gjöfin sem hún hefði getað óskað sér á afmæli sínu að geta haldið fleiri tónleika fyrir aðdáendur sína en söngkonan fagnaði 58 ára afmæli sínu í gær.Dion greindi frá því árið 2022 að hún hefði greinst með ólæknandi sjálfsónæmissjúkdóm, en sjúkdómurinn veldur stífleika í vöðvum.
Af heilsufarslegum ástæðum hefur Dion haldið sig að miklu leyti frá sviðsljósinu síðan hún greindist með sjúkdóminn.Tónleikaferðalagi hennar var aflýst árið 2019, fyrst vegna Covid-19 faraldursins og síðar vegna heilsu hennar. Hún kom þó fram á opnunarhátíð Ólympíuleikanna í París 2024 þegar hún söng í Eiffelturninum.Dion hefur selt yfir 260 milljón hljómplötur á ferli sínum sem nær allt aftur til 1988. Þá keppti hún fyrir Sviss og sigraði Eurovision-söngvakeppnina með lagi sínu Ne partez pas sans moi“ en hún var aðeins 20 ára gömul þegar hún sigraði keppnina. Ráðgert er að hún verði með tíu tónleika í París í haust og fyrstu tónleikarnir verða 12. september.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.