Byltingarvörðurinn hótar að gera árásir á skip sem sigla inn í Hormússund — kúgunartilburðir segir Bandaríkjaforseti
0
World

Byltingarvörðurinn hótar að gera árásir á skip sem sigla inn í Hormússund — kúgunartilburðir segir Bandaríkjaforseti

April 19, 2026
Scroll

Posted 4 hours ago by

Íranski herinn lokaði Hormússundi í morgun, tæpum sólarhring eftir að hafa opnað það. Íranski byltingarvörðurinn hótar að leggja til atlögu við hvert það skip sem leysir festar í Persaflóa eða Ómanflóa. Allar tilraunir til siglinga um Hormússund verði álitnar liðsinni við óvininn Bandaríkin og skipin því álitin réttmæt skotmörk, að því er segir í yfirlýsingu sjóhers byltingarvarðarins á eigin vefsíðu.

Byltingarvörðurinn hótar að gera árásir á skip sem sigla inn í Hormússund — kúgunartilburðir segir Bandaríkjaforseti

Íranar kváðust í gærmorgun munu hafa strangt eftirlit með umferð um sundið þar sem Bandaríkin hefðu gengið á bak orða sinna og haldið höfnum landsins í herkví. Donald Trump varaði Írana við afleiðingum þess að beita Hormússundi sem kúgunartóli gegn Bandaríkjunum. Við erum að ræða við þá, þeir vildu endilega loka sundinu eins og þeir hafa gert árum saman,“ sagði Trump á viðburði í Hvíta húsinu. Á sama tíma segist öryggisráð Írans vera að meta nýjar friðartillögur frá Bandaríkjunum og áréttaði jafnframt að samningamenn stjórnarinnar samþykktu engar málamiðlanir. Í yfirlýsingu segir að enn hafi ekki verið brugðist opinberlega við tillögunum. Írönsk stjórnvöld segja að tæplega 3.500 hafi verið drepin í stríðinu við Ísrael og Bandaríkin.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More