BSO verður að Hreyfli eftir 73 ár í rekstri á Akureyri
April 8, 2026
RÚV
Bifreiðastöð Oddeyrar á Akureyri heyrir brátt sögunni til, en leigubílstjórar BSO keyra undir merkjum Hreyfils frá næstu mánaðamótum. Til stendur að byggja á reit leigubílastöðvarinnar og fengu þeir frest til 1. maí til að færa starfsemina.Við sáum ekki rekstrargrundvöll áfram með því að fara héðan og missa verslunina og annað“, sagði Smári Ólafsson, leigubílstjóri og stjórnarformaður hjá BSO þegar fréttastofa leit við á leigubílastöðinni í dag.Þar er nú starfsfólk í símsvörun og lítil sjoppa með starfsmanni í afgreiðslu, en fimm stöðugildi hverfa frá Akureyri við breytinguna.BSO var stofnað 1953 og hefur verið í rekstri í miðbæ Akureyrar í um 73 ár, þar af um 70 í leigubílastöðinni við Strandgötu.Eftir rúmar þrjár vikur heyrir vörumerkið Bifreiðastöð Oddeyrar sögunni til og gamla leigubílastöðin verður rýmd, eftir áralangar deilur við Akureyrarbæ um hvort húsið eigi að vera eða víkja fyrir nýbyggingum.Dæmt var BSO í vil í Landsrétti á síðasta ári þegar máli þeirra var vísað aftur í hérað, þar sem málinu hafði áður verið vísað frá.
Málið er ekki komið á dagskrá dómstólsins.Það sem eftir verður af BSO eftir breytinguna er fyrst og fremst tvennt; bílstjórarnir og gamla símanúmerið, sem verður áfram opið.Haraldur Axel Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hreyfils segir ánægjulegt að hefja starfsemi utan höfuðborgarsvæðisins og útilokar ekki að þau færi enn út kvíarnar.Já, það er allt opið í þeim efnum. Það er alveg mögulegt að við förum að fara inn á Selfoss innan tíðar svo verður bara að koma í ljós hvort fleiri aðilar vilji koma til samstarfs við okkur.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.