Breyting á reglugerð fæli barnalækna úr landi
0
World

Breyting á reglugerð fæli barnalækna úr landi

April 19, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Formaður Félags íslenskra barnalækna segist sjá fram á að barnalæknum fækki hér á landi vegna reglugerðar sem valdi því að margir fái sérfræðimenntun sína ekki viðurkennda af íslenskum yfirvöldum. Félagið vill að heilbrigðisráðherra endurskoði reglugerðina og túlkun hennar.Reglugerðin tók gildi árið 2023 og segir Helga Elídóttir, formaður Félags íslenskra barnalækna og yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins, að margir læknar hafi rekist á vegg innan kerfisins síðan þá.Sumir sérgreinalæknar eru að lenda í einhverjum bjúrókratískum ómöguleika að geta ekki fengið sitt sérnám viðurkennt hér á Íslandi.“Lítið framboð af sérnámi á Íslandi þýði að barnalæknar þurfi upp til hópa að sækja menntun í sérgreinum erlendis.

Breyting á reglugerð fæli barnalækna úr landi

Læknar í stærri og fjölmennari löndum geti í meira mæli sótt sérnám í heimalandinu.Þegar maður ætlar að sækja um þetta leyfi hérna heima þá eru heimatilbúnar reglur hvað varðar skilyrði sem þarf að uppfylla,“ segir Helga.Sum þessara skilyrða er ómögulegt að uppfylla, eins og að það sé til einhvers konar marklýsing fyrir viðkomandi sérnám hér á landi. Því þetta er alls ekki kennt hér heima og mun ekki verða, því við erum allt of fá til að stunda slíkt sérnám hér.“Eigum í hættu á að missa lækna“Helga segir alvarlegt ástand hafa skapast því reglugerðin torveldi heimkomu sérfræðilækna í vissum greinum. Hún telur barnalækna jafnvel forðast vissar sérgreinar, sjái þeir ekki fram á að fá menntun sína viðurkennda, eða sjái hag sinn frekar í að starfa erlendis en á Íslandi.Þetta hefur auðvitað í för með sér að við erum ekki að fá lækna sem okkur vantar og við eigum í hættu á að missa lækna sem nú þegar eru að störfum.“Því sé skortur á læknum yfirvofandi á tilteknum sviðum sem valdi því að þjónusta við börn með vissa sjúkdóma skerðist.Til framtíðar verður þetta mjög alvarlegt því við munum ekki ná að halda endurnýjun í vissum fögum því fólk vill augljóslega ekki fara í undirsérgreinar sem fást ekki viðurkenndar í heimalandinu.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More