Boðar tímabundnar aðgerðir gegn verðbólgu
World

Boðar tímabundnar aðgerðir gegn verðbólgu

April 9, 2026
RÚV
Scroll

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ætla að kynna tímabundnar aðgerðir í efnahagsmálum á morgun. Ekki er ljóst hvað felst í aðgerðunum en þeim er ætlað að taka á þeirri stöðu sem upp er komin, meðal annars vegna áhrifa af stríðsátökum í Mið-Austurlöndum.Það er óvissa og verður áfram óvissa. En stundum þarf að taka í bremsuna og skipta um gír, detta í nýjan takt, til að hemja verðhækkanir,“ sagði Kristrún í ræðu sinni á ársfundi Seðlabankans í dag.

Boðar tímabundnar aðgerðir gegn verðbólgu

Aðgerðirnar komi hins vegar ekki í staðinn fyrir umbætur til lengri tíma.Þannig munum við leggja okkar af mörkum og hvetja atvinnulífið um leið til að leggja okkur lið með afgerandi hætti við að hemja verðbólguna og koma henni í markmið.“Kristrún ætlar líka að efna til þríhliða samtals Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og stjórnvalda um að hemja verðbólgu á næstu misserum. Hún sagðist telja að forsendur kjarasamninga haldi og að henni þætti ekki tímabært að setjast við kjarasamningaborð.Ég hef gert aðilum vinnumarkaðarins það algjörlega ljóst að þessi ríkisstjórn hafnar þeirri leið, sem áður hefur tíðkast, að stjórnvöld efni til nýrra varanlegra ríkisútgjalda sem eru ófjármögnuð til að höggva á hnúta í kjaradeilum á almennum vinnumarkaði,“ sagði Kristrún.Allra síst kemur það til greina á tímum sem þessum þegar staða verðbólgu og verðbólguvæntinga er eins viðkvæm og raun ber vitni.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More