0
Boðar ný viðmið við ákvörðun lyfjaverðs
April 21, 2026
Posted 3 hours ago by
Miðað verður við meðalverð á Norðurlöndum við ákvörðun á lyfjaverði hér á landi í stað þess að miða við lægsta verð.Þetta tilkynnti Alma Möller heilbrigðisráðherra í ávarpi sínu á afmælisráðstefnu Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda á Íslandi. Ráðstefnan fór fram á Hilton Reykjavík Nordica undir yfirskriftinni Hvað ræður lyfjamálum – vísindin, peningarnir eða pólitíkin?Alma segir að með þessu sé verið að móta skýra forgangsröðun við innleiðingu nýrra lyfja á markað.
Miðað hefur verið við lægsta verð frá því í kringum efnahagshrun. Meðal annars var vakin athygli á því á síðasta ári að hætt væri við að krabbameinslækningar hér á landi dragist aftur úr á Norðurlöndum ef nýjustu lyf eru ekki innleidd.Ef við setjum verðið of lágt getur það dregið úr hvata fyrirtækja til að koma með lyf hingað til lands,“ sagði Alma Möller í ávarpi sínu. Með því að horfa til meðalverðs Norðurlanda erum við að leitast við að skapa jafnvægi milli kostnaðar og aðgengis, milli ábyrgðar og framfara, og milli þess að vera samkeppnishæf sem markaður en á sama tíma skynsöm í ráðstöfun fjármuna. Þetta eru skref í átt að raunhæfari og sjálfbærari nálgun.“Nýjum lyfjum fylgi samfélagslegur ávinningurSamkvæmt nýjustu könnun EFPIA, Evrópusamtaka frumlyfjaframleiðenda, hafði Ísland einungis tekið upp 34 nýrra lyfja sem skráð voru í Evrópu á tilteknu árabili. Til samanburðar hafði Þýskaland tekið 90 lyfjanna í notkun og Danmörk 60.Pétur Magnússon, framkvæmdastjóri Frumtaka, segir ákvörðunina marka tímamót.Ákvörðun stjórnvalda eftir hrun um að miða ávallt við lægsta verð á Norðurlöndum hefur verið raunveruleg markaðshindrun fyrir ný lyf, bæði vegna áhrifa á verðmyndun í öðrum löndum og vegna annars tilkostnaðar. Ísland er örmarkaður sem engu að síður lýtur sömu kröfum og stór ríki. Yfirlýsing ráðherra er því mjög mikilvæg stefnubreyting sem við fögnum,“ segir hann.Jafnframt bendir hann á að bættu aðgengi að nýjustu lyfjum fylgi víðtækur samfélagslegur ávinningur, meðal annars með því að draga úr álagi á heilbrigðiskerfið og veikindatengdum fjarvistum. Lyf eru ekki aðeins meðferð, heldur fjárfesting í framtíð samfélagsins.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.