0
Boðar breytingar á einkunnakerfi grunnskóla
April 15, 2026
Posted 2 hours ago by
Fyrirhugaðar breytingar menntamálaráðherra á námsmatskerfi grunnskóla eru bæði óábyrgar og bera vott um þekkingarleysi, segir formaður Kennarasambands Íslands. Hann gagnrýnir stjórnvöld fyrir skort á samráði.Breytingarnar svar við ákalli foreldraInga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hélt erindi á þingi Kennarasambands Íslands í morgun, þar sem hún tilkynnti breytingar á námsmatskerfi grunnskóla.Jafnframt tel ég eðlilegt að við notum, hérna, nú kemur það nú kemur það, bíðið þið, haldið ykkur, haldið ykkur fast, að við notum tölustafi í einkunnagjöf eins og tíðkast í framhaldsskólum og háskólum, en ekki bókstafi eða önnur form svo sem liti sem getur verið erfitt að skilja.“Inga segir breytingarnar viðbrögð við ákalli foreldra.
Í skoðanakönnun sem gerð hafi verið fyrir skömmu hafi tæplega níutíu prósent svarað að við einkunnagjöf væru tölustafir ákjósanlegri en bókstafir.Orð ráðherra mættu misjöfnum undirtektum fundargesta – og gengu einhverjir úr salnum.Ég veit að það er umdeilt í ykkar hópi en mér finnst það skipta máli. Og það skiptir líka máli að þetta er í samræmi við það sem meirihluti foreldra og samfélagsins vill,“ segir Inga.Óásættanlegt að ákvarðanir séu teknar bakvið luktar dyrMagnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segist fyrst hafa heyrt af breytingunum í morgun. Þær gangi þvert á það sem hafi verið í umræðunni undanfarin ár.Að menntamálaráðherra tilkynnti að hún ætli einhvern veginn að breyta því námsmatskerfi sem hefur verið viðhaft við lok grunnskóla sérstaklega og hefur um leið verið aðgöngumiði að framhaldsskólunum okkar. Og það að halda að það sé hægt að skipta um það eins og að henda krónupeningi ber vott um þekkingarleysi,“ segir Magnús.Hann gagnrýnir stjórnvöld fyrir samráðsleysi.Að fara inn í einhverja popúlíska leið byggða á samtölum við fólk eða skoðanakönnunum, einhverjum óræðum, til að taka svona ákvörðun sem mun hafa gríðarleg áhrif inn í skólastarf og valda óöryggi er óábyrgt,“ segir Magnús og heldur áfram.Þetta er grundvallaratriði um hvernig við ætlum að útskrifa börnin okkar úr grunnskóla, hvernig við ætlum að flytja þau upp á næsta skólastig og það getur ekki verið þannig að það sé einhvers konar ákvörðun sem er tekin bak við lokaðar dyr inni í menntamálaráðuneytinu án öflugs samtals við vettvanginn í grunn- og framhaldsskólum. Þetta getur ekki verið svona.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.