Boðað til skyndifundar í ríkisstjórn í kvöld
April 10, 2026
RÚV
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar koma saman til fundar í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu klukkan 19.Gera þarf breytingar á frumvarpi ríkisstjórnarinnar, sem var kynnt í morgun, um breytingar á virðisaukaskatti á eldsneyti.Á ríkisstjórnarfundi í morgun var ljóst að gera þyrfti tæknilegar breytingar á orðalagi frumvarpsins til að allir ráðherrar væru sammála.Mikilvægt að halda tímamörkumJón Steindór Valdimarsson, aðstoðarmaður Daða Márs Kristóferssonar fjármálaráðherra, segir að enginn ágreiningur sé uppi um efni frumvarpsins.Mikilvægt sé þó að klára smávægilegar orðalagsbreytingarnar í kvöld svo að frumvarpið komist á dagskrá Alþingis eftir helgi.Atvinnustefna Íslands og tímabundnar efnahagsaðgerðir gegn verðbólgu voru kynntar á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag.Efnahagsaðgerðirnar eru þríþættar: Virðisaukaskattur á eldsneyti lækkar úr 24 prósentum í 11 prósent, vöktun á verðlagningu verður aukin og hleðslustöðvum fjölgað.Aðgerðirnar taka gildi 1.
maí og gilda til 31. ágúst.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.