0
Boða starfsfólk á fund um hagræðingaraðgerðir
April 22, 2026
Posted 7 hours ago by
Starfsfólk Landspítalans hefur verið boðað á fund um fyrirhugaðar hagræðingaraðgerðir vegna skorts á fjárveitingum til starfsemi hans. Þetta kemur fram í pósti sem var sendur til starfsfólks í dag.Samkvæmt heimildum fréttastofu verður fundurinn haldinn í næstu viku. Ekki liggur fyrir hverjar aðgerðirnar eru en stjórnendur innan spítalans hafa sagt uppsagnir fylgja því að mæta aðhaldskröfu stjórnvalda.Stjórnendur og starfsfólk Landspítalans hafa lýst þungum áhyggjum af áhrifum aðhaldskröfunnar á þjónustu við sjúklinga og Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur sagt að krafan sé ekki raunhæf.Uppsagnir í bígerðRafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráðalyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans, sagði að fækka þyrfti fólki í lágu starfshlutfalli til að hægt væri að ráða fleiri í hærra starfshlutfall.Það er þegar búið að draga úr svona stöðugildum og það eru fleiri í bígerð,“ sagði Rafn í byrjun mánaðar.Boðað er til starfsmannafundar þar sem fjallað verður um starfsemi og rekstrarstöðu spítalans ásamt hagræðingaraðgerðum sem eru óhjákvæmilegar vegna skorts á fjárveitingum til starfseminnar,“ segir í pósti sem sendur var til starfsfólks í dag.Forstjóri mun fjalla um helstu verkefni, fjárhagsstöðu og ákvarðanatöku í tengslum við hagræðingaraðgerðirnar og áhrif þeirra á starfsemi Landspítala.
Framkvæmdastjóri rekstrar og mannauðs mun í framhaldinu fara yfir fjárhagsstöðu spítalans og nauðsyn hagræðingaraðgerða og hverju gert er ráð fyrir að þær skili.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.