Blindir og sjónskertir heimsóttu Veiðisafnið á Stokkseyri
March 28, 2026
RÚV
Ísbjörn, gíraffi, sebrahestur og ljón voru meðal uppstoppaðra dýra, sem blindir og sjónskertir félagsmenn Blindrafélags Íslands fengu að snerta og þreifa á þegar Veiðisafnið á Stokkeyri var heimsótt. Mikil ánægja var með heimsóknina.Páll Reynisson, sem hefur verið með safnið í tuttugu og tvö ár sýndi safnið og leyfði öllum að þreifa og snerta eins og þeir vildu.
Hann hefur meira og minna veitt öll dýrin á safninu og fengið svo færa uppstoppara til að stoppa þau upp.Upplifunin er svo mikil því þau fá að þreifa. Þó að ég segi sjálfur frá þá er þetta náttúrulega einstakt safn. Það er eins og einn góður maður sagði þegar hann var að kveðja okkur hérna um árið, Já, þetta er til á Íslandi og já, það á Stokkseyri”. En grínlaust, þá er þetta væntanlega eitt stærsta safn af uppstoppuðum dýrum á landinu og ég hef veitt þetta nánast allt meira og minna sjálfur, langt yfir 95 prósent,” segir PállVorferð BlindrafélagsinsMikil ánægja var með heimsóknina. Kjartan Ástmundsson, sem er alveg blindur var alsæll en hann var mjög duglegur að þreifa og snerta dýrin.Heyrðu, þetta er flott, ég er mjög ánægður með þetta,” segir Kjartan.Rúna Garðarsdóttir, félagsmálafulltrúi Blindrafélagsins, var líka mjög ánægð með heimsóknina.Þetta er vorferðin en hún er að vísu aðeins fyrr heldur en hefur verið en við ákváðum það að koma hérna og fá að þreifa og svona. Hann Páll er svo yndislegur að leyfa okkur að koma við, það skiptir okkur svo miklu máli, sem erum blind eða lögblind. Að fá að koma við og finna lagið á dýrunum og hlutunum, það skiptir öllu máli til að njóta,” segir Rúna.Og gíraffinn var felldur af stalli sínum svo fólkið gæti snert og þreifað hann.Það er mjög fróðlegt og skemmtilegt að koma í þetta safn og sérstaklega gaman fyrir okkar hóp að fá að snerta dýrin og finna þannig hvernig stærðin er, útlitið og áferðin, þetta er bara alveg magnað,” segir Sigþór Hallfreðsson, formaður Blindrafélags Íslands.En er vitað hvað margir eru blindir og verulega sjónskertir á Íslandi eins og staðan er í dag?Það eru svona átján hundruð til tvö þúsund manns, sem hafa þrjátíu prósent sjón eða minna,” segir Sigþór.Það var góð stemning á Veiðisafninu á Stokkseyri þegar stofnandi safnsins tók á móti félagsmönnum Blindrafélags Íslands í dag.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.