Blaðamaður segir Pál og Pál hafa varað sig við því að fjalla um íslenskan sjávarútveg
0
World

Blaðamaður segir Pál og Pál hafa varað sig við því að fjalla um íslenskan sjávarútveg

April 19, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Þú ert í mjög miklum vandræðum ef þú ert kominn langt í rannsókn þinni.“ Svohljóðandi voru skilaboð frá bloggaranum Páli Vilhjálmssyni til blaðamannsins Emil Eire Frerk Olsen á danska fjölmiðlinum Berlingske.Ég fer ekki fram á að þú trúir mér, ég er bara að vara þig við.“Olsen vann þá að umfjöllun um íslenskan sjávarútveg og segir fjölda heimildarmanna sinna hafa greint frá því að valdamiklir einstaklingar í sjávarútvegi hafi notað ítök sín til þess að þagga niður í gagnrýnisröddum.Berlingske ræddi við 19 heimildarmenn um íslenskan sjávarútveg, kvótakerfið og Samherjamálið, sem lýstu íslenskum sjávarútvegi sem nútíma fámennisstjórn, eða óligarkí, byggða á ótta, græðgi og pólitískum áhrifum.Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra var á meðal viðmælenda Berlingske og sagði öfluga þrýstihópa standa í vegi fyrir því að leysa vandann, þar á meðal Sjálfstæðisflokkinn.Í umfjölluninni bendir Olsen á að Ísland hafi fallið niður í 17.

Blaðamaður segir Pál og Pál hafa varað sig við því að fjalla um íslenskan sjávarútveg

sæti yfir alþjóðlegt fjölmiðlafrelsi, sem sé langt fyrir neðan hin Norðurlöndin.Haft er eftir Gunnari Inga Jóhannssyni hæstaréttarlögmanni að árásir á trúverðugleika blaðamanna sem fjalli um íslenskan sjávarútveg séu nánast daglegar.Á sínum tveimur áratugum sem lögmaður hafi hann ítrekað varið blaðamenn í meiðyrðamálum. Hann hafi sex sinnum þurft að fara með blaðamanni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.Passaðu þigÍ lengri tölvupóstaþræði, sem hófst þremur dögum eftir að Berlingske sendi Samherja fyrirspurn, segir Olsen að Páll Vilhjálmsson hafi hvatt hann til þess að hlusta ekki á fávita“ með vísan til fjölmargra heimildarmanna hans.Daginn eftir tölvupóstinn frá Páli Vilhjálmssyni barst blaðamanninum annar tölvupóstur, að þessu sinni frá nafna hans Páli Steingrímssyni, fyrrverandi skipstjóra Samherja. Hann þekkti einnig til rannsóknar Olsen og sagði honum að passa sig“. Heimildarmenn hans væru aðgerðarsinnar sem vilja valda öðrum skaða“.Blaðamaður Berlingske segir Pál og Pál hafa hafið samskipti sín við fjölmiðilinn með nákvæmlega sama hætti, skömmu eftir að hann sendi Samherja fyrirspurn. Samherji hafi enn ekki svarað ítrekuðum fyrirspurnum Berlingske.Olsen segir Pálana tvo hafa haldið áfram að senda sér tölvupóstana í nokkra daga. Páll Steingrímsson hafi til að mynda sagt að hann vonaði að það færi ekki eins fyrir Olsen og fyrir Lasse Skytt. Rannsóknir á skrifum Skytt, sem er búsettur hér á landi, leiddu í ljós að þau innihéldu mikið af rangfærslum og stolnum texta.Auk viðvarananna segir Olsen Pál og Pál hafa sent sér fjölda greina úr Morgunblaðinu, sem hann bendir dönskum lesendum á að hafi verið í eigu sjávarútvegsins frá efnahagshruninu 2007. Páll Vilhjálmsson hafi þess að auki skrifað fjölda greina sem birst hafi í blaðinu.Báðir virðast greinilega vera í beinu sambandi við starfsmenn ákveðinna sjávarútvegsfyrirtækja“Olsen tekur fram að honum hafi ekki tekist að staðfesta beint samráð milli Páls, Páls og Samherja í tengslum við samskipti þeirra við Berlingske.Sex íslenskir heimildarmenn Berlingske telji aftur á móti miklar líkur á því að Samherji standi á bak við samskipti þeirra við blaðamanninn, hvort sem það sé með beinum eða óbeinum hætti.Þrír þeirra vildu ekki láta nafns síns getið starfs og öryggis síns vegna, en Olsen ræddi við blaðamann Heimildarinnar, Aðalstein Kjartansson, og blaðamann RÚV, Helga Seljan. Berlingske hefur eftir Helga að Páll Steingrímsson hafi að minnsta kosti í þrígang sent honum hótanir í tengslum við umfjöllun hans um Samherja, sem og öðrum blaðamönnum.Helgi og Aðalsteinn segjast ekki í efa um að erindi Páls og Páls til Berlingske tengist enda séu þeir almennt furðulega sammála um einstaklega ólíklegar samsæriskenningar,“ að sögn Aðalsteins.Báðir virðast greinilega vera í beinu sambandi við starfsmenn ákveðinna sjávarútvegsfyrirtækja – og að mínu mati undirstrika þessi nýjustu erindi þeirra það enn frekar.“Varpaði ljósi á skæruliðadeildina“Helgi hefur fjallað mikið um Samherjaskjölin og hefur sakað Samherja um skipulagðar árásir gegn sér vegna umfjöllunarinnar, meðal annars með skrifum Páls Steingrímssonar og gerð áróðursmyndbanda.Aðalsteinn er meðal sex blaðamanna, ásamt þáverandi eiginkonu Páls Steingrímssonar, sem voru til rannsóknar í tengslum við ásakanir Páls á hendur þeim um byrlun, afritun á upplýsingum af síma og dreifingu á kynferðislegu myndefni. Lögreglan á Norðurlandi eystra felldi málið niður.Aðalsteinn hefur ásamt hinum blaðamönnunum alfarið neitað sök og bent á rétt blaðamanna til að taka á móti gögnum.Þá hefur Aðalsteinn einnig átt í málaferlum við Pál Vilhjálmsson vegna ummæla Páls í hans garð um meðal annars meinta byrlun. Héraðsdómur dæmdi ummælin dauð og ómerk en Landsréttur snéri dómnum við og sýknaði Pál.Árið 2021 varpaði Aðalsteinn ljósi á samskipti milli Páls Steingrímssonar, Örnu McClure, þáverandi yfirlögfræðings hjá Samherja, og Þorbjörns Þórðarsonar, almannatengils hjá Samherja. Samskiptin sýndu að skoðanagreinar og jafnvel athugasemdir við stöðufærslur sem Páll skrifaði í kjölfar uppljóstrunar um Samherjaskjölin hefðu að miklu leyti eða nánast alfarið verið skrifaðar af Þorbirni með aðstoð Örnu.Í samskiptunum töluðu þau ítrekað um sig sem skæruliðadeildina“. Páll Steingrímsson hefur hafnað því að hafa tilheyrt skæruliðadeild Samherja.Segir íslensku blaðamennina skálda tröllasögur ofan í ungan mannBæði Páll og Páll fengu færi á að bregðast við umfjöllun Berlingske áður en hún birtist. Báðir hafna þeir því að hafa haft samband við Olsen fyrir tilstilli Samherja.Páll Steingrímsson viðurkennir þó að hann hafi heyrt um umfjöllun Berlingske meðal annars í gegnum Samherja“. Það sé þó ekkert óeðlilegt eða tortryggilegt við það að hans mati, þó svo að tímasetning erindis hans kunni að gefa annað í skyn.Hann segist einnig vera í reglulegum samskiptum við nafna sinn en að erindi þeirra til blaðamannsins hafi ekki verið samstillt.Páll Vilhjálmsson ítrekar að hann hafi hvorki starfað fyrir Samherja né Morgunblaðið og segir frétt Olsen ekki halda vatni. Hann brást raunar við umfjöllun Berlingske í skoðanagrein á fréttin.is. tveimur dögum áður en Berlingske birti greinina.Hann segist þar telja nokkuð ljóst að Aðalsteinn og Helgi hafi skáldað tröllasögur ofan í ungan danskan blaðamann“. Birti hann fréttina verði brátt um starfsframa hans að mati Páls.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More