Björgunarsveitir og lögreglan á Norðurlandi eystra fengu fjögur útköll í kvöld vegna bíla sem sátu fastir í stórhríð í nágrenni Akureyrar. Þá bíður rúta með 34 manns um borð í Aðaldal eftir aðstoð björgunarsveita vegna slæms skyggnis og skafrennings.Veðrið skall á með mikilli hríð og skafrenningi fyrr í kvöld fyrir norðan og fyrstu útköll bárust lögreglunni um kl. 22, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra Lögreglunnar á Akureyri.Björgunarsveitirnar Súlur á Akureyri, Dalbjörg í Eyjafirði og Týr á Svalbarðseyri eru komnar á vettvang og vinna að því að aðstoða fólk, en nokkrir bílar eru fastir á veginum milli Akureyrar og Dalvíkur. Þá eru einnig bílar fastir á Eyjafjarðarbraut í Eyjafjarðarsveit og austanmegin við Vaðlaheiðargöng. Ekki liggur þó fyrir á þessari stundu hversu margir bílar bíða aðstoðar björgunarsveita á þessu svæði.Þá er verið að ræsa út björgunarsveitir í Aðaldal og á Húsavík vegna rútu sem er stopp á veginum við Vestmannsvatn í Aðaldal, vegna stórhríðar og lélegs skyggnis. 34 manns eru um borð og björgunarsveitir eru á leið á vettvang.Holtavörðuheiði er lokuð og vegurinn alla leið að Varmahlíð er lokaður. Ófært er um Vatnsskarð og Þverárfjall. Þungfært er og stórhríð á Öxnadalsheiði. Vegurinn um Ólafsfjarðarmúla er lokaður vegna snjóflóðahættu.
March 28, 2026