0
Björguðu manni sem féll í Davíðsgjá
April 18, 2026
Posted 3 hours ago by
Þrjár björgunarsveitir voru kallaðar út á hæsta forgangi í gær vegna slasaðs manns í gjótu. Talsverðan mannskap þurfti til að hífa manninn upp og koma honum undir læknishendur.Björgunarsveitirnar Ingunn á Laugarvatni, Tintron í Grímsnesi og Björgunarfélag Árborgar voru kallaðar út rétt um klukkan átta í gærkvöld vegna manns sem féll í Davíðsgjá sem er við austanverða Vatnsvík í Þingvallavatni.
Auk sveitanna var sjúkraflutningalið frá Selfossi og lögregla kölluð út.Hópur fólks hafði verið við sund í gjánni þegar einn lenti í gjótu og slasaðist nokkuð á fæti með talsverðum blæðingum.Ljóst var frá upphafi að nokkur vinna yrði að koma þeim slasaða þangað sem sjúkrabíll kæmist og fóru hópar strax í að koma upp línum og tryggingum til að undirbúa að koma þeim slasaða á sjúkrabörum upp úr gjánni.Hinn slasaði hress miðað við aðstæðurJakob Guðnason er varaformaður Tintron og tók þátt í útkallinu og segir manninn hafa verið kominn upp úr gjótunni þegar björgunarsveitarfólk bar að garði.En það eru þarna klettasillur sem við erum að koma honum upp. Þetta er kannski svona 4-5 metra hækkun sem við erum að koma honum upp í stórgrýti og það þurfti bara töluverðan mannskap til að ná því. Svo voru þetta svona 150 metrar í kjarri og stórgrýttu landslagi til að koma honum að sjúkrabílnum.“Um tuttugu manns tóku þátt í aðgerðunum og segir Jakob útkallið hafa gengið hratt og vel fyrir sig. Hann viti ekki hvernig hinum slasaða heilsist í dag en að hann hafi verið nokkuð brattur miðað við aðstæður.Hann var talandi þegar hann fór inn í sjúkrabíl frá okkur og nokkuð hress miðað við aðstæður.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.