Birnir var einum hundraðasta úr sekúndu frá EM lágmarki
March 29, 2026
RÚV
Íslandsmótinu í sundi í 50 metra laug lauk í Ásvallalaug í Hafnarfirði í kvöld. Birnir Freyr Hálfdánarson sigraði í 50 metra flugsundinu með yfirburðum en sigurtími hans var 24,40 sekúndur, aðeins einum hundraðasta úr sekúndu frá EM lágmarki í greininni en Evrópumótið í 50 metra laug verður haldið í París í ágúst.Íslandsmótinu í sundi í 50 metra laug lauk í Ásvallalaug í Hafnarfirði í kvöld.
Tveir keppendur syntu sig inn á Evrópumótið í sumar og einn var grátlega nálægt lágmarkinu í sinni grein.Birgitta Ingólfsdóttir náði hins vegar lágmarki inn á EM í 50 metra bringusundi. Hún varð Íslandsmeistari í greininni í dag á tímanum 31,61 sekúndu og vann með svakalegum yfirburðum því hún var rúmlega þremur sekúndum á undan næstu konu, sem er frekar mikið í sprettgrein sem þessari.Guðmundur Leó Rafnsson náði líka lágmarki inn á EM í 100 metra baksundi þegar hann sigraði á 56,27 sekúndum en sá tími er fimm hundruðustu úr sekúndu undir lágmarkinu inn á Evrópumótið.Meðal annarra úrslita í dag má nefna að Vala Dís Cicero varð Íslandsmeistari í 100 metra skriðsundi á 56,38 sekúndum. Hún var ríflega tveimur sekúndum á undan næstu konu.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.