Bílvelta á Hellisheiði
World

Bílvelta á Hellisheiði

April 5, 2026
RÚV
Scroll

Ökumaður velti bíl á Hellisheiði í kvöld. Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um umferðaróhappið um 21:20.Einar Sigurjónsson aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi staðfestir þetta. Einar segir engan hafa slasast við bílveltuna. Sjúkrabíll hafi verið kallaður á vettvang en enginn þó verið fluttur á sjúkrahús.Hann segir að bílveltan eigi ekki að valda umferðartöfum á Hellisheiði.

Bílvelta á Hellisheiði

Samkvæmt myndskeiði frá vettvangi er töluverð bílaröð á heiðinni en fjöldi fólks er á heimleið úr páskafríi vegna óveðursins á morgun. Einar segir umferð þó heilt yfir hafa gengið vel í kvöld.Ökumaður valt bíl sínum á Hellisheiði.RÚV / Ragnar Visage

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More